Fimm líkamsárásir og þrjú kynferðisbrot
8. ágúst, 2018

Lögregla telur 15.000 manns hafa sótt þjóðhátíð Vestmannaeyja 2018 og er hátíðin með þeim stærstu sem haldin hefur verið. 26 lögreglumenn sinntu löggæslu á þremur lögreglubifreiðum auk 150 gæslumanna sem lúta stjórn lögreglu. Tveir sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra voru til aðstoðar lögreglu á sérútbúnum bíl. Sex óeinkennisklæddir lögreglumenn sinntu fíkniefnaeftirliti og höfðu sér til aðstoðar 3-4 fíkniefnaleitarhunda sem eru í eigu embættis Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, Lögreglustjórans á Vestfjörðum og Fangelsismálastofnun. Starfandi læknir var í dalnum auk heilbrigðisstarfsfólks, áfallateymis, barnaverndar og sjúkraflutningamanna og gengu allir sólarhringsvaktir.

Umferð gekk vel þessa helgi. Lögregla leggur ríka áherslu á að greina gangandi umferð frá akandi í Herjólfsdal og hefur tekist vel til sérstaklega með lengingu á göngustíg í dalinn. Á álagstímum var umferð gangandi og akandi verulega þung í dalnum og ljóst að leysa þarf þar úr hnökrum fyrir næsta ár.

Heildarfjöldi fíkniefnamála voru 35 að þessu sinni, árið 2017 voru málin 47, árið 2016 voru málin 30 og árið 2015 72 talsins. Grunur er um sölu- og dreifingu í tveimur þessara mála. Lögregla er ánægð með árangurinn og hefur það sýnt sig að öflugt fíkniefnaeftirlit skilar árangri. Að mati lögreglu var minna um fíkniefnaneyslu á hátíðinni nú en oft áður. Fíkniefnaleitarhundar eru ávallt notaðir við leit á þjóðhátíð og auka þeir árangur og gæði eftirlitsins. Notkun leitarhundanna fækkar ennfremur neikvæðum afskiptum af fólki og hafa ótvírætt forvarnargildi.

Fimm líkamsárásir komu inn á borð lögreglu. Alvarlegasta árásin var spark í líkama sem olli innvortis blæðingum og var árásarþoli fluttur með sjúkraflugi til aðhlynningar á LSH. Önnur alvarleg líkamsárás olli nefbroti og aðrar þrjár minniháttar áverkum. Kærur liggja fyrir í tveimur brotanna. Ein árásin var heimilisofbeldismál þar sem gerandi og þolandi eru tengdir aðilar. Önnur brot voru sex eignaspjöll, fimm auðgunarbrot, eitt húsbrot, ein hótun, fimm áfengislagabrot, fjórir fíkniefnaakstrar og einn ölvunarakstur.

Þrjú kynferðisbrot eru til rannsóknar hjá lögreglu eftir helgina. Kona varð fyrir kynferðislegri áreitni á bílastæði í dalnum að kvöldi laugardags. Í hinum tveimur er uppi grunur um misneytingu. Kærur liggja ekki fyrir í málunum.

Lögregla sinnti fjölmörgum verkefnum yfir hátíðina og gekk vel að leysa úr öllum verkefnum sem komu inn á borð hennar. Að mati lögreglu gekk löggæsla vel og voru bæði lögregla og gæslumenn áberandi í Herjólfsdal og stutt í aðstoð. Viðbragð í sjúkraskýli, hjá áfallateymi og barnavernd var gott og var fjölmörgum sinnt vegna mismunandi erfiðleika. Veður setti strik í reikninginn á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags en þjóðhátíðargestir voru almennt vel búnir og vel gekk að koma fólki í skjól í íþróttahúsi sem þurfti á því að halda. Lögregla þakkar viðbragðsaðilum fyrir gott samstarf vegna þjóðhátíðar sem er jafnan stærsta löggæsluverkefni lögreglunnar á ári hverju

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst