Fimmti sjúkdómurinn
Ef þú sérð lasið barn rautt í kinnum eins og það hafi verið slegið utanundir beggja vegna er ekki ólíklegt að fimmti sjúkdómurinn sé hér á ferð. Nafnið mun vera þannig til komið að af þeim sjúkdómum sem herjuðu á börn var talað um skarlatssótt sem fyrsta sjúkdóminn, mislinga annan, rauða hunda þann þriðja, hlaupabólu fjórða og svo kemur sá fimmti. Einnig var talað um faraldsroða og á erlendum málum erythema infectiosum eða slapped cheek diease.
�?etta er veirusjúkdómur orsakaður af paróveiru B19. �?að eru til margar paróveirur þar á meðal veirur sem herja á dýr, þessi veira leggst eingöngu á menn. Við smit myndar líkaminn mótefni sem endist ævina út. Rannsóknir sýna að 40-60% manna hafa mótefni gegn veirunni og líklega sýkjast margir án þess að fá mikil eða nokkur einkenni.
Algengast er að börn á aldrinum 5-15 ára veikist en þó geta allir sýkst. Smitið berst með úða frá nefi eða kverkum og það geta liðið 4-20 dagar frá smiti þar til einkenni koma fram. Einkenni í upphafi eru oft lík kvefi eða flensu, nefrennsli, hiti, höfuðverkur og beinverkir. �?tbrot byrja í andliti og koma svo eftir nokkra daga fram á búk og útlimum, lófar og iljar eru oft undanskilin, þó getur komið fram kláði á iljum. Eftir að útbrot birtast er ekki hætta á smiti, þannig að ef börn eru hitalaus og líður vel er þeim óhætt að fara á leikskóla og skóla þrátt fyrir útbrot. �?tbrotin geta verið sýnileg í allt að 3 vikur.
Bólgur og eymsli í liðum geta fylgt fimmta sjúkdómnum, sérstaklega hjá fullorðnum. �?að er engin meðferð til við sjúkdómnum en hægt að reyna að slá á kláða og mögulega önnur einkenni. Ef þunguð kona smitast á meðgöngu er líklegast að það valdi ekki skaða fyrir barnið. Í innan við 5% tilvika getur sýkingin þó valdið blóðleysi hjá fóstri, þannig að fósturlát verði.
Forvarnir eru svipaðar og gegn öðrum loftbornum smitsjúkdómum. Sjúkdómurinn er almennt greindur á einkennum, það er hægt að mæla mótefni í blóði til greiningar en það er í undantekningartilvikum sem það er gert.
f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Helga �?orbergsdóttir
Hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Vík

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.