Hin árlega Goslokahátíð fer fram í Vestmannaeyjum dagana 1.-4. júlí en á hátíðinni minnast Eyjamenn lokum eldgossins 1973. Dagskráin í ár er fjölbreytt en meðal annars má finna þar rokktónleika Dúndurfrétta, listsýningar, handverksmarkaði, matarveislur, Eyjatónleika, gönguferðir og frumsýningu á kvikmynd. Dagskrá Goslokahátíðarinnar má sjá hér að neðan.