3 stór mál tekinn fyrir á morgun

Á bæjarstjórnarfundi á morgun verða tekinn fyrir 3 mjög stór mál fyrir Vestmannaeyjar og þau innihalda meðal annars; nýtt útivistarsvæði, knattspyrnuhús og lækkun á leiksskólargjöldum. Hægt er að lesa tillögurnar í heild sinni hér að neðan.1. Mál Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja nýtt útivistarsvæði við íþróttamiðstöð […]

Ekki líklegt að komi til fjöldaatvinnuleysis á næstu mánuðum

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir, að samtals verði varið 10,5 milljörðum króna til mótvægisaðgerða á næstu tveimur fiskveiðiárum vegna niðurskurðar þorskkvóta. Ekki eru í þessari tölu framlög til vísindaverkefna. 6,5 milljarðar eru nýtt fjármagn en rúmir 4 miljarðar eru flýting á framkvæmdum. Árni sagði að það væri mat ríkisstjórnarinnar, eftir að hafa ráðfært sig við […]

Stoppuðu þyrlupall milljarðamærings

Þetta er allt saman hrokkið í réttan gír þannig að menn fara að settum lögum og reglum,” segir Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, um það er skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu kom í gær í veg fyrir steypuvinnu við þyrlupall hjá frístundahúsi milljarðamæringsins Magnúsar Kristinssonar.Magnús, sem er útgerðarmaður og eigandi Toyota-umboðsins með meiru, á sem kunnugt er […]

Aðalfundur Eyverja

Aðalfundur Eyverja verður haldinn miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 20 í Ásgarði. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1.     Skýrsla stjórnar 2.     Reikningar lagðir fram 3.     Lagabreytingar 4.     Kosning til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa 5.     Önnur mál Stjórn Eyverja (meira…)

Alltaf jafn gott að koma til Eyja

www.eyjar.net mun á næstu vikum og mánuðum heyra í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorft þau hafa til Vestmannaeyja. Í dag eru það Siggi Vídó og Berglind Ómarsdóttir Nöfn ?Sigurgeir Þorbjarnarson ( Siggi Vídó)Berglind Ómarsdóttir Fjölskylduhagir ?Gift með […]

Stungusending inn í framtíðina

Created by PhotoWatermark Professional

Eftir því sem umræða um knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum hefur dregist á langinn, og framkvæmdir í þá veru sömuleiðis, hef ég gert mér betur og betur í hugarlund áhrif þess að gera ekki neitt til lengri tíma.   En það yljar mér meira og mér finnst mun skemmtilegra að velta fyrir mér, hvað ef menn nú bara […]

Fyrstu 10-15. mínúturnar skipta máli

Gunnar Heiðar Þorvaldsson átti fanta góðan leik á laugardaginn gegn Spánverjum og er Kappinn staðráðinn í því að gera en betur í leiknum við Norður Íra á morgun. Hann sagði að fyrstu 10-15. mínúturnar skipta gríðarlegu máli og leikurinn mun verða mikil baráttu leikur. Það verður farið í þennan leik alveg eins og við gerðum […]

I love Vestmannaeyjar

Einn stærstu söluvefur á internetinu í dag er www.amazon.com sem byrjaði sem “bókabúð” á netinu en hefur þróast í gríðarstóran söluvef á bókum, dvd myndum. tónlist , verkfærum og tölvuleikjum. Ef að slegið er Vestmannaeyjar í leitarstreng kemur eftirfarandi m.a. eftirfarandi í ljós: Kaffibolli merkur I Love Vestmannaeyjar Stuttermabolur sem einnig er merkur I Love […]

Góðan daginn frá Amsterdam!

Við fengum ekki húsið okkar fyrr en síðasta föstudag, eftir mikið tuð og puð út í fasteignasalann. Hann ætlaði fyrst ekki að hleypa okkur inn fyrr en 10. september og seinna breyttist það í 14. september, eitthvað kjaftæði í honum um mikla pappírsvinnu og þar fram eftir götunum. En það reddaðist allt saman fyrir rest […]

Lögreglusamþykkt Vestmannaeyjabæjar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið af stað með herferð til þess að bæta ástandið í miðbæ Reykjavíkur um helgar. Karlmenn hafa verið handteknir fyrir að kasta af sér þvagi utandyra og einstaklingar handteknir fyrir að kasta rusli en þessir einstaklingar hafa verið handteknir útfrá lögreglusamþykktum Reykjavíkur www.eyjar.net skoðaði hvað væri áhugavert í lögreglusamþykkt Vestmannaeyjabæjar:   […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.