Flugeldar lækka í verði um 15-20%
Flugeldasalan fer af stað í dag hjá Björgunarfélaginu. Adolf �?órsson hjá Björgunarfélaginu sagði að Vestmannaeyingar taka þeim alltaf vel �??það klikkar ekkert þegar kemur að flugeldasölunni og Eyjamenn taka okkur vel sem gleður alltaf mjög mikið.�??
Verðum að taka tillit til hvors annars
Aðspurður út í umhveris afleiðingar sem flugeldar gefa af sér og þær gagnrýnis raddir sem láta í sér heyra um þessar mundir sagði Adolf að hann virði skoðanir annarra. �??�?að er sjálfsagt að allir hafi sínar skoðanir og ég skil það og sama má segja um hundaeigendur, þetta er ekki góður tími fyrir þá og ég skil það, en við bara verðum að hafa eitthvað sem er líka gaman í lífinu en auðvitað pössum við okkur og hefur varan hjá okkur verið að þróast í betri átt. En þetta snýst um að allir taki tillit til hvors annars.�??
Allir að nota gleraugun, amma og afi líka
Á þessum árum sem Adolf hefur starfað við björgunarsveitina hafa öryggismál í kringum flugeldana tekið stórt stökk. �??�?ar má kannksi nefna tvennt, númer eitt er aukin vitund allra um öryggisgleraugu sem sagt að það séu allir með gleraugu ekki bara börnin, afi og amma líka og allir hinir. �?etta virðir vera komið inn hjá fólki sem er mjög jákvætt. Annað er svo að varan er öll að færast yfir í kökur sem þýðir það að það er bara ein nálgun að vörunni, þá ertu ekki að eiga við hana aftur og aftur, sem er gríðaleg slysavörn í�??
15-20% verðlækkun á flugeldum
�?að er mjög mikið nýtt og spennandi í gangi í þessum efnum sagði Adolf, �??þetta er loka árið í þriggja ára áætlun í endurnýjun á allri vörunni. Fólk á eftir að sjá það bæði í efni og úrvali. �?að er til dæmis mjög stór og fjölbreytt flóra í millitertunum núna í ár. Punkturinn yfir i-ið er svo verðlækkunin, en við erum að sjá 15-20% verðlækkun á vörunum. �?essu höfum við verið að bíða eftir, okkur fannst varan orðin heldur dýr.�?? Adolf segir að fólk sé að fara sjá vöru sem er flott, komin með allar þær vottanir sem við viljum sjá, stöðug og smart. �??Við erum mjög spennt og hlökkum til að taka á móti fólki næstu daga,�?? sagði Adolf.
Brenna og flugeldarsýning klukkan fimm á gamlársdag
Í lokin ber svo að nefna að björgunarsveitin stendur fyrir flugledasýningunni sem fram fer á Gamlársdag ár hvert. ÍBV sér um brennuna sem byrjar klukkan 17:00 þegar hún hefur logað í smá stund tekur Björgunarsveitin við með sýningu.

Nýjustu fréttir

Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.