Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Matthías Harðarson

Eyjamaðurinn Matthías Harðarson, dómorganisti, heldur hádegistónleika í Hallgrímskirkju næstkomandi laugardag, 4. apríl, og hefjast þeir klukkan 12.

„Það er einstakt að spila í Hallgrímskirkju,“ segir Matthías í viðtali við Morgunblaðið í dag  en hann hefur oft leikið í kirkjunni, bæði í forföllum fasts organista hennar og á tónleikum. Á tónleikunum flytur hann verk eftir Bach og Marcel Dupré. „Orgelið er frábært og hljómurinn í kirkjunni hjálpar mikið til. Þetta stærsta orgel landsins gerir manni kleift að gera ýmislegt skemmtilegt.“

Matthías ólst upp í Vestmannaeyjum þar sem tónlist var hluti af daglegu lífi. Foreldrar hans léku á píanó og afi hans á saxófón, og því hófu systkinin öll píanónám. Hann byrjaði tíu ára gamall og fékk síðar að æfa á orgel Landakirkju, sem mótaði áhuga hans á orgelleik.

Samhliða stúdentsnámi lærði hann vélstjórn og útskrifaðist sem vélfræðingur árið 2017. Hann lauk kirkjuorganistaprófi árið 2016, BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2020 og meistaraprófi í Árósum.

Hann hefur starfað bæði sem organisti og vélstjóri, meðal annars á Baldri og Herjólfi, auk þess sem hann hefur kennt við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Hann nýtti kvöldin til æfinga og hyggst, sem dómorganisti, halda áfram að rækta tengsl sín við sjómennsku.

Nánar í Morgunblaði dagsins.

 

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.