Í kvöld, föstudaginn 2. mars, mun sönkonan Sólveig Unnur Ragnarsdóttir syngja lög við ljóð Halldórs Kiljan Laxness á Vinaminni, kaffihúsi við Bárustíg. Um undirleik sjá hjónin Kitty Kovács, píanóleikara og Balázs Stankowsky, fiðluleikara. Þá mun Ásta Steinunn Ástþórsdóttir, leikkona stikla á stóru um ævi ljóðskáldsins og lesa upp nokkur ljóð hans.