Dagskráin á laugardaginn hófst kl. 13 á bókakynningu í Einarsstofu. Kári Bjarnason forstöðumaður safnsins sagði í upphafi að um síðustu Safnahelgi hefði verið bryddað upp á þeirri nýbreytni að bjóða bókaforlagi að koma í heimsókn og kynna útgáfuna og taka með sér valda rithöfunda úr sínum röðum.
Sagði Kári að hugmyndin að baki væri sú að bjóða upp á sem fjölbreyttasta kynningu. �?að má segja að sú hugmynd hafi gengið vel eftir, því bækurnar og kynningarnar voru skemmtilega ólíkar.
Fyrst kom Dögg Hjaltalín annar eigandi bókaforlagsins Sölku og kynnti útgáfustefnu forlagsins og helstu bækur sem einnig voru til sýnis. �?á komu rithöfundarnar og kynntu afar ólíkar bækur. Fyrst kom Stefán Gíslason með bók sína Fjallvegahlaup en hann ákvað þegar hann var fimmtugur að hlaupa 50 fjallvegi víðs vegar um landið fyrir sextugt og skrifa bók um ævintýrið. Hvoru tveggja tókst og það verður að segja eins og er að kynning Stefáns var afar lífleg og skemmtilegt.
Næstur kom Sölvi Björn Sigurðsson sem sá um heildarútgáfu á ljóðum Tómasar Guðmundssonar skálds. Texti Sölva var ljóðrænn og lestur hans á völdum ljóðum Tómasar dásamlega sefjandi og gefandi.
Að lokum voru gestir dregnir út á blóði drifna slóð spennuskáldsögunnar þar sem Sólveig Pálsdóttir kynnti nýjustu sögu sína, Refurinn. Sólveig er lærð leikkona og það kom vel í ljós í flutningi hennar. Frábær stund í Einarsstofu þar sem mjög ólíkir rithöfundar kynntu mjög ólíkar bækur.