Í dag, fimmtudaginn 31. janúar 2013 fer fram fræðsluerindi um Marsjeppann Curiosity á vegum Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum, efstu hæð. Erindið hefst klukkan 19:30 og er öllum opið. Það er Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, sem flytur erindið.