Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær var m.a. fjallað um stöðu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Í fundargerð ráðsins kemur fram að það taki undir áhyggjur framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands en erindi um málið barst bæjarráði. „Stærsta breytingin er sú að skurðstofan er nú lokuð í sex vikur á ári. Þá hefur verið dregið mikið úr göngudeildarstarfsemi og úr þjónustu heilsugæslulækna,“ segir m.a. í bókun bæjarráðs.