Fróðlegar kosningar
Sveitastjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 26. maí nk. Ljóst er að þrír listar munu bjóða fram Í Vestmannaeyjum og berjast um sætin sjö sem í boði eru í bæjarstjórn, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn, Eyjalistinn og bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey.
�?að er öruggt að töluverð endurnýjun muni eiga sér stað í bæjarstjórn enda nýr listi sem býður fram og sömuleiðis mörg ný nöfn á bæði Eyjalistanum og lista Sjálfstæðisflokksins frá því fyrir fjórum árum. �?að vekur einnig athygli að konur eru meira áberandi en áður en í samanlögðum efstu tveimur sætum flokkanna þriggja má finna fimm konur og aðeins einn karl.
Hingað til hafa augu flestra beinst að stigmagnandi átökum innan Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Segja má að átökin hafi náð hámarki þegar prófkjör flokksins var blásið af í byrjun árs en nokkru áður virtist sem flokkurinn væri á leið í sitt fyrsta prófkjör síðan árið 1990. Svo reyndist ekki vera því tillagan var felld á fundi fulltrúaráðs og í staðinn ákveðið að fara í röðun á lista eins og margoft hefur komið fram. Í kjölfarið var hið nýja bæjarmálafélag, undir forystu Írisar Róbertsdóttur sem áður hafði hafnað þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, sett á laggirnar. Ágreiningurinn virðist einnig ná niður í ungliðahreyfinguna því Hákon Jónsson, formaður Eyverja, sagði af sér á dögunum og skipar nú tíunda sætið á lista Fyrir Heimaey.
�?að er því óhætt að segja að nokkurs kurrs gætir meðal Sjálfstæðismanna í Eyjum. En hvað með málefnin? Hvar ber helst á milli flokkanna þriggja? �?að hefur minna farið fyrir því síðustu vikur og mánuði en á væntanlega eftir að skýrast fljótlega. Breytt vinnubrögð og lýðræðislegri hefur borið á góma en eitt stærsta málið verður væntanlega rekstur nýrrar ferju, hvort bærinn hyggst sjá um reksturinn eða bjóða hann út. �?að verður væntanlega Borgarlínumál Eyjamanna.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði á dögunum tapar Sjálfstæðisflokkurinn meirihlutanum í komandi kosningum en í könnuninni mældist flokkurinn með 41% fylgi, rúmum 32% minna en flokkurinn fékk í kosningunum 2014. Í sömu könnun fékk Fyrir Heimaey 32% og Eyjalistinn 25%. Til gamans gerðu Eyjafréttir sína eigin netkönnun sem opnaði í hádeginu á mánudaginn en rúmum sólarhring síðar höfðu 598 manns svarað. �?ar fær Fyrir Heimaey 42%, Sjálfstæðisflokkurinn 31% og Eyjalistinn 16%. 10% voru óákveðnir. Hversu vel svona kannanir endurspegla veruleikann veit ég ekki en eitt er víst, það eru fróðlegir tímar framundan í pólitíkinni.

Nýjustu fréttir

Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.