Fulltrúi í samgönguhóp
Á fundi bæjarstjórnar var samþykkt að Egill Arnar Arngrímsson taki sæti í upplýsingavettvangi um samgöngur á sjó milli lands og Eyja. �?á samþykkti bæjarstjórn að fela bæjarráði að koma á allt að 10 manna bakhópi hvað þennan upplýsingavettvang varðar sem verður fulltrúa bæjarins til halds og trausts.
Undanfari þessa máls er að á 3033. fundi bæjarráðs þann 13. september s.l. var eftirfarandi erindi afgreitt með því að vísa því til næsta fundar í bæjarstjórn:
Erindi frá Innanríkisráðuneytinu dags. 25. ágúst s.l. þar sem fram kemur að Innanríkisráðherra hefur ákveðið að koma á upplýsingavettvangi helstu aðila sem koma að samgöngum við Vestmannaeyjar á sjó. Tilgangurinn er að stuðla að samráði og betra upplýsingaflæði milli þeirra sem hafa hagsmuni af greiðum samgöngum ef það má verða til þess að framkvæmdin verði skilvirkari og betri. Gert er ráð fyrir að þátttakendur verði kallaðir saman eftir þörfum og að lágmarki tvisvar á ári. Hér með er óskað eftir að Vestmannaeyjabær tilnefni fulltrúa sinn í hópinn.
Bæjarráð fagnar því að ákveðið sé að stofna upplýsingavettvang um samgöngur á sjó milli lands og Eyja en ákvörðunin kemur í kjölfar fundar sem bæjarráð átti með Innanríkisráðherra í ágúst s.l. Bæjarráð vísar málinu til umræðu og afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar í lok september n.k.

Nýjustu fréttir

Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.