Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur fundað tvisvar sinnum sl. fimm daga og aðeins eitt mál á dagskrá. Það er ný gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs árið 2024.
Á fyrri fundi ráðsins sem var þann 15. febrúar segir í fundargerð að lögð sé fram einstaklingsgjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum fyrir árið 2024. Þegar hefja á gjaldtöku af íbúum á móttökustöð er eðlilegt að sú gjaldskrá sé umtalsvert lægri en fyrirtækjagjaldskrá. Ástæða þess eru að íbúar greiða fastagjald inn í sínum sorphirðugjöldum sem eru rukkuð með fasteignagjöldum. Það gjald er ekki lagt á fyrirtæki.
Ráðið frestaði ákvörðun um einstaklingsgjaldskrá þar til á næsta fundi ráðsins og var framkvæmdastjóra falið að afla frekari gagna og breyta framsetningu skv. umræðum á fundinum og leggja aftur fyrir á næsta fundi.
Ráðið mun í framhaldinu fá kynningu á starfsemi móttökustöðvar og útfærslu á gjaldheimtu, segir í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs frá því á fimmtudag.
https://eyjar.net/ny-gjaldskra-gnaefir-yfir-adra/
Ráðið fundaði svo aftur vegna málsins í morgun. Þar lagði Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs fram gjaldskrá með breyttri framsetningu samkvæmt umræðu á síðasta fundi.
Fram kemur í niðurstöðu að ráðið samþykki fyrirliggjandi gjaldskrá enda er hún í samræmi við kröfur ríkisins um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi). Var málinu vísað til bæjarstjórnar.
Samkvæmt lögum ber sveitarfélögum að innheimta gjald fyrir meðhöndlun úrgangs sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu svo sem með því að miða við magn eða tegund úrgangs. Slíkt kerfi hefur verið kallað “Borgað þegar hent er” og byggist á mengunarbótareglunni.
Í slíku kerfi verður til fjárhagslegur hvati til að draga úr myndun úrgangs og til að skila úrgangi flokkuðum til endurvinnslu, fremur en að skila honum með blönduðum úrgangi.
Sá sem dregur úr úrgangsmagni eða flokkar vel greiðir þannig minna fyrir meðhöndlun hans en sá sem gerir það ekki.
Ráðið leggur til að skrefagjald og aðgengi að sorpílátum verði skoðað og endurmetið samhliða nýjum rekstrarsamningi.
https://eyjar.net/ny-gjaldskra-mun-endurspegla-raunkostnad/
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst