Ein óvæntustu úrslit Deildarbikarkeppninnar í enska fótboltanum litu dagsins ljós í kvöld þegar enska C-deildarliðið fór illa með fyrrum stórlið Manchester United. Liðin áttust við á heimavelli MK Dons og var uppselt eins og gefur að skilja. Lokatölur urðu 4:0 fyrir MK Dons en svo skemmtilega vill til að fyrrum leikmaður ÍBV, George Baldock leikur með MK dons og var í byrjunarliðinu í kvöld. Baldock lék með ÍBV sumarið 2012 og þótti standa sig með mikilli prýði. Hann lék 17 leiki með félaginu og skoraði eitt mark áður en hann sneri aftur til MK Dons.