Slökkvilið Vestmannaeyja fór í sitt fyrsta útkall á árinu þegar aðeins rétt rúmar fimm klukkustundir voru liðnar af því. Klukkan rúmlega 5 aðfaranótt Nýársdags var slökkviliðið kallað að Illugagötu en þar logaði glatt í flugeldaafgöngum, sem hafði verið safnað saman í fiskikör.