Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra, fór fram á dögunum. Er þetta í tuttugasta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni hlutu styrkina Gaujulundur, Skólalúðrasveitin, Óskar Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða, Bókasafn Vestmannaeyja og Vosbúð, menningarmiðstöð ungs fólks. Um leið var skrifað undir samstarfssamninga við Golfklúbb Vestmannaeyja og Taflfélagið.