Gjaldskrá hitaveitunnar mun hækka um 7,39% 1. september

Hitaveitan hefur tilkynnt að hækkun verði á gjaldskrá hjá þeim 1. september í Vestmannaeyjum. Fram kemur að “síðustu misseri hafa verið áskoranir í rekstri hitaveitu í Vestmannaeyjum vegna raunhækkunar á raforkukostnaði og vegna bilana á sæstreng Landsnets og skerðinga í raforkuframleiðslu með tilheyrandi kostnaðaraukningu vegna olíukaupa.

HS Veitur hafa þrátt fyrir fyrrgreindar áskoranir tryggt viðskiptavinum fullt aðgengi að heitu vatni og ætla áfram að veita góða þjónustu en til að reksturinn beri sig er nauðsynlegt að gera breytingar á gjaldskrá og rekstri veitunnar.

Gjaldskrá hitaveitunnar hækkar um 7,39% frá 1. september. Samhliða verða gerðar breytingar á heitavatnsframleiðslu í kyndistöðinni til að sporna við sívaxandi kostnaði vegna orkukaupa. Með breytingunni er ætlunin að láta hina orkunýtnu sjóvarmadælustöð stýra framrásarhita, líkt og hún var hönnuð til að gera, sem gerir heitavatnsframleiðsluna bæði hagkvæmari og umhverfisvænni. Þannig verður heitavatnsframleiðslan minna háð rafmagni og olíu en áður. Breytingin mun hafa þau áhrif að framrásarhitastig verður eitthvað lægra en áður þegar álag á hitaveitunni er mikið. Gera má ráð fyrir að hitastig frá kyndistöð lækki um 0-4°C frá því sem nú er eftir árstímum”.

Nýjustu fréttir

Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Vara við snjóhengjum og grýlukertum
Staðan í Viðlagafjöru þremur árum eftir fyrstu skóflustungu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.