Glæsileg gjöf til Sæheima
SAMSUNG CAMERA PICTURES
SAMSUNG CAMERA PICTURES
Gunnar Júlíusson hélt sýningu um Safnahelgina, sem opnuð var í Sæheimum 6. nóvember. �?ar sýndi hann tölvugerð myndverk sem prentuð voru á stór segl og hanga úr loftum fiskasalarins og fuglasalarins. �?ema verkanna er dýrin á safninu. Gunnar gaf safninu þessi flottu verk til eignar og er ekki spurning að þau eiga eftir að skreyta safnið um ókomin ár. Bestu þakkir Gunnar fyrir rausnarlega gjöf og skemmtilegt samstarf.
Sýning Gunnars mun verða opin áfram í Sæheimum og þeir sem misstu af henni um síðustu helgi geta bætt það upp og komið á safnið, sem verður opið á laugardögum kl. 13-16.
Á myndinni er Gunnar ásamt fjölskyldu sinni við nokkur verka sinna í Fiskasal Sæheima. Gunnar gerði einnig minni myndir af verkunum, sem eru til sölu í BK-Gler.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.