Suðurlandið.is hefur síðustu tvær vikur kynnt fyrir lesendum sínum og áhorfendum þá frambjóðendur í Suðurkjördæmi sem eiga möguleika á þingsæti miðað við skoðanakannannir undanfarið. Rætt hefur verið við 4 efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins, 3 hjá Samfylkingunni og 2 hjá Framsóknarflokknum og Vinstri grænum (ekki náðist að taka viðtal við Arndísi Soffíu Sigurðardóttur í 2. sæti VG fyrir kosningar). 10 þingmenn frá Suðurkjördæmi eiga sæti á Alþingi, níu þingsæti eru kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti.