Í dag tóku Eyjastúlkur á móti Gróttu eftir langt hlé í Olísdeild kvenna. Með sigri í dag gátu Eyjastúlkur blandað sér enn frekar í toppbaráttuna en þær eru í fjórða sæti deildarinnar en Grótta í öðru. Jafnræði var með liðinum fyrstu mínúturnar, staðan var 4-4 en eftir það sáu Eyjastúlkur aldrei til sólar og eftir 20. mínútna leik var staðan 6-12. Grótta hélt jafnt og þétt að bæta forskotið en ÍBV gerðu mikið af mistökum. Staðan í hálfleik var 8-16.
Í seinni hálfleik héldu Gróttu stelpur áfram uppteknum hætti og þegar síðari hálfleikur var hálfnaður munaði 10 mörkum, 14-24. Mest komst Grótta í 14 marka mun en lokatölur urðu 21-31.