Hamingja og heilsa í tilraunaglösum

Bræðurnir Jón og �?orgeir höfðu forgöngu um söfnun daggarinnar og höfðu í því skyni komið upp plastdúkum á landareign sinni. Samkvæmt heimildum Sunnlenska liggur mikil þróunarvinna að baki því hvernig að söfnun daggarinnar var staðið og má heita að þeir bræður hafi báðir verið í fullu starfi við undirbúninginn í allt sumar.

�?á var við átöppun komið á mjög virku gæðaeftirliti með dögginni þar sem hún var skimuð eftir átöppun. Með dögginni fylgir strá sem nota skal til þess að bera döggina á líkamann. Á leiðbeiningarblaði kórfélaga kemur fram að ekki megi opna glasið fyrr en við notkun þar sem töfrar daggarinnar geti ella sloppið út. �?á er mikilvægt að nota döggina aðeins útvortis en ekki til inntöku eða neyslu. Til að tryggja hámarksvirkni þarf notandi að vera nakinn utandyra og bera döggina á sig sem víðast með meðfylgjandi strái og fingurgómum. Döggin verður að fá að þorna á húðinni en áður en það er orðið geta menn óskað sér. �?á er talið ótvírætt að döggin hefur áhrif á hamingju, tilhugalíf, hjúskap og önnur rómantísk sambönd.

Jónsmessudögg Vörðukórsfélaga er til sölu í Sunnlenska bókakaffinu og kostar glasið 500 krónur.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.