Haukur í Horni í Norðausturkjördæmi

Kröfulýsing gríðarstórt inngrip í mat á eignarrétti: „Það er óhætt að segja að framkomnar þjóðlendukröfur fjármálaráðherra sem beinast að eyjum og skerjum við Ísland veki mikil viðbrögð fólks, þá sérstaklega sveitarstjórnarfólks sem segir kröfulýsinguna vera gríðarstórt inngrip í mat á eignarrétti og framtíðarsýn fjölmargra íbúa og landeigenda um land allt. Flestar eyjar sem kröfurnar beinast að eru þinglýstar eignir einstaklinga, sveitarfélaga og annarra aðila og í sumum tilvikum hefur ríkið selt eyjar sem það ætlar nú að taka aftur til sín,“ segir Ingibjörg Isaksen oddviti Framsóknar í Norðausturkjördæmi á Facebook síðu sinni í gær.

Full langt seilst

„Upphaflegur tilgangur með setningu laga um þjóðlendur var að leysa úr ágreiningi sem ríkt hafði í áratugi um eignarhald á hálendissvæðum landsins eða þeim svæðum sem lengst hafa verið nefnd afréttir og almenningar. Að mínu mati er nú full langt seilst frá upphaflegum markmiðum laganna. Nú er verið að sækjast eftir landsvæði þar sem nú eru m.a. fasteignir og rúmast innan deiliskipulags sveitarfélaga. Það er eðlilegt að vakin sé athygli á þessu því ljóst er að þetta muni hafa töluverðan kostnað í för með sér fyrir sveitarstjórnir og eigendur þessara landsvæða. Að auki getur krafan skapað mikla óvissu og hamlað mikilvægri uppbyggingu og verðmætasköpun,“ segir Ingibjörg.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.