Haustönn 2020 hjá FÍV
14. ágúst, 2020

Nú líður að upphafi annarinnar og línur teknar að skýrast varðandi fyrirkomulag kennslunnar. Síðustu daga og vikur hafa stjórnendur unnið að því að setja saman bestu lausn svo hægt verði að kenna bæði í staðnámi og fjarnámi.

Það er ljóst að næstu mánuði og misseri munum við þurfa að lifa með mismiklum samkomutakmörkunum vegna Covid-19, því er rétt að skipuleggja skólastarf miðað við þá staðreynd.

Niðurstaðan er stundatafla sem gerir ráð fyrir blandaðri kennslu. Annars vegar verður staðbundin kennsla í skólanum þar sem nemendur mæta í kennslutíma hjá kennara í hverju fagi einu sinni í viku og hins vegar rafræn heimakennsla. Kennsla í áföngum getur verið með mismunandi hætti. Það þarf að huga að fjöldatakmörkunum í rýmum og sumir áfangar verða einhver blanda af fjarnámi og staðarnámi meðan aðrir geta verið nær eingöngu staðarnám eða fjarnám. Allt eftir eðli áfanga og fjöldatakmörkunum hverju sinni. Nemendur fá nánari upplýsingar varðandi fyrirkomulag kennslu þegar nær dregur skólabyrjun. Stundataflan verður aðgengileg á INNU í byrjun næstu viku og þá geta nemendur betur glöggvað sig á fyrirkomulaginu.

Við einsetjum okkur að nýta allt rými sem gefst til að taka á móti nemendum eins og kostur er en á sama tíma fara eftir núgildandi reglum sóttvarnarlæknis um framhaldsskóla og virða 1 metra regluna. Til þess að framkvæmdin gangi eftir þurfa nemendur að taka á sig töluverða ábyrgð hvað sóttvarnir varðar og hlýða fyrirmælum.

Skólanum hefur verið skipt upp í hólf og þurfa nemendur að nota mismunandi innganga til þess fara í hvert hólf. Í hverju hólfi verða aldrei fleiri en 100 einstaklingar (nemendur og starfsfólk) og mega nemendur ekki fara milli hólfa. Í hverri kennslustofu verða um 12 nemendur.

Af þessum sökum verður upphaf haustannar með breyttu sniði:
Nýnemar (fæddir 2004 eða 2005) og eldri nemendur (fæddir 2003 eða fyrr) sem ekki hafa áður verið í FÍV verða boðaðir í skólann í litlum hópum dagana 20. og 21. ágúst. Nánari upplýsingar um skipulag þessa daga hafa verið sendar til þessa hóps.

Opnað verður fyrir rafrænar töflubreytingar fimmtudaginn 20.ágúst.

Mánudaginn 24.ágúst hefst síðan kennsla samkvæmt stundatöflu þar sem kennt verður bæði rafrænt og í skólanum og því skipulagi sem sett verður upp. Nemendur fá nánari upplýsingar um það síðar.

Nemendur sem telja sig hafa málefnalegar ástæður fyrir því að mæta ekki í skólann eru beðnir um að hafa samband við Helgu Kristínu Kolbeins, skólameistara (helgak@fiv.is).

Munið að við verðum að sýna samstöðu, þolinmæði og seiglu til að takast á við breytt skólastarf. Þetta ástand mun reyna á okkur öll og við þurfum að lifa með veirunni og þeim tilmælum og fyrirmælum sem koma frá sóttvarnaryfirvöldum á hverjum tíma. Skólayfirvöld taka sóttvarnareglur mjög alvarlega og treysta því að nemendur skólans geri það einnig. Við förum samt sem áður bjartsýn inn í þessa önn en þurfum að vera tilbúin að breyta um takt ef reglurnar breytast.

Menntun, öryggi og velferð allra í FÍV verður ávallt í forgangi.

Hlökkum til að sjá ykkur
Starfsfólk FÍV

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst