Með fullfermi eftir örstutta túra
sjomadur_bergey_opf_22
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir fullfermi í Þorlákshöfn í gærmorgun. Um mjög stuttar veiðiferðir var að ræða en þær tóku einungis um 30 tíma höfn í höfn. Veitt var á Selvogsbanka, nánar tiltekið vestan við Surt og sunnan við svonefnda Klöpp. Aflinn var langmest þorskur, stór og fallegur vertíðarfiskur.

Skipstjórarnir, Ragnar Waage Pálmason á Bergey og Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey, sögðu að veðrið hafi ekki verið sérlega gott. Megnið af tímanum hafi verið haugasjór og almennt heldur erfiðar aðstæður veðurfarslega en vel hafi hins vegar gengið að fiska og gjarnan fengist um 10 tonn í hverju holi.

Bæði skip héldu til veiða frá Þorlákshöfn í gærkvöldi og reiknað er með að þau landi á ný um helgina, að því er segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.