Björgunarfélag Vestmannaeyja mun á 95. starfsári sínu taka upp þau nýmæli að taka inn með skipulögðum hætti nýja meðlimi sem eru 25 ára eða eldri.
Kynningarfundur þess efnis verður haldinn í sal Skátaheimilisins fimmtudaginn 31. janúar kl. 20. Fundur þessi verður í styttra lagi, þannig að allir sem hafa snefil af áhuga eru hvattir til að mæta. Allir hafa eitthvað fram að færa sem hægt er að nýta í björgunarstörfum.