Heilbrigðismál í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi: Aðeins Páll Valur, Ari Trausti og Páll Magnússon svöruðu
Eyjafréttir sendu Sigurði Inga Jóhannssyndi forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins, Páli Magnússyni Sjálfstæðisflokki, Oddnýju Harðardóttur Samfylkingu, Ara Trausta Guðmundssyni Vinstri grænum, Páli Val Björnssyni Bjartri framtíð, Smára MacCarthy Pírötum, Jónu Sólveigu Elínardóttur Viðreisn, Guðmundi Sighvatssyni Alþýðufylkingunni og Sturlu Hólm Jónssyni Dögun sem öll eru oddvitar framboðanna í Suðurkjördæmi nokkrar spurningar um stöðu heilbrigðismála á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Heimtur voru rýrar og aðeins svöruðu þrír, Páll Valur, Ari Trausti og Páll Magnússon.
Páll Valur:
�?að er staðreynd að rekstur HSU á Suðurlandi er vanfjármagnaður og fari sem horfir verður stofnunin að skerða þjónustu á næsta ári. Hvar sjáið þið helst möguleika á niðurskurði?
– �?g hreinlega hef ekki svar við því hvar það ætti að gerast enda tel ég að ekki verði lengra gengið í niðurskurði hjá stofnuninni. Ef hún á að standa undir lögbundnum skyldum sínum þá verður öllum niðurskurði að ljúka nú þegar og auknu fjármagni veitt til hennar.
Finnst þér ásættanlegt að sjúkraflug verði með óbreyttu fyrirkomulagi? Ein flugvél staðsett á Akureyri sem þjóna á öllu landinu?
– Nei, það finnst mér alls ekki og hef reifað þá hugmynd að Landhelgisgæslan sjái um sjúkraflugið allavega sunnan og vestanlands. Hún gæti síðan gert þjónustusamning við t.d Mýflug um að sinna sjúkraflugi norðan og austanlands. �?etta er gífurlega mikilvægt öryggisatriði fyrir fólk á landsbyggðinni ekki síst fyrir íbúa Vestmannaeyja sem ekki búa við tryggar samgöngur allan sólarhringinn.
Telur þú það ofverk ríkisins að halda úti skurðlæknaþjónustu í Vestmannaeyjum?
– Nei, það tel ég ekki og myndi halda að nýta ætti skurðlækni sem staðsettur yrði í Eyjum til þess að sjá um einhvern hluta þeirra aðgerða sem gerðar eru á Landspítalanum. Nú bíða um 6000 manneskjur eftir aðgerðum að öllu tagi og að minni hyggju ætti að nýta stærri heilbrigðisstofnanir landsins sem búnar eru skurðstofum til þess að sinna þessum aðgerðum. �?að segir sig sjálft að Landspítalinn nær ekki að sinna þessu.
Finnst þér í lagi að konur í Vestmannaeyjum þurfi að fæða börn sín uppi á landi með tilheyrandi óhagræði og miklum kostnaði?
– Alls ekki og þetta er eitthvað sem hreinlega verður að breyta, það er algerlega óásættanlegt að mismuna fólki eftir því hvar það er búsett.
Ari Trausti:
�?að er staðreynd að rekstur HSU á Suðurlandi er vanfjármagnaður og fari sem horfir verður stofnunin að skerða þjónustu á næsta ári. Hvar sjáið þið helst möguleika á niðurskurði?
– Við sjáum engan raunhæfan möguleika á niðurskurði. Nóg er komið. VG hafa lagt fram þá stefnu að endurskipuleggja og eða auka starfsemi sjúkrahúsanna úti á landi eins og sagt er. Meðal annars er gert ráð fyrir að safna saman 51 milljarði króna með álögum á þá sem hæstar hafa tekjur og t.d. með auknum auðlindagjöldum – á næsta ári. �?ar af eiga 18 milljarðar að ganga til heilbrigðismála. HSU, á öllu þjónustusvæðinu, færi ekki varhluta af því handabandi.
Finnst þér ásættanlegt að sjúkraflug verði með óbreyttu fyrirkomulagi? Ein flugvél staðsett á Akureyri sem þjóna á öllu landinu?
– Sjúkraflug er afar kostnaðarsamt. �?að er hægt og rétt að minnka álagið á það með aukinni þjónustu helstu heilbrigðisstofnana utan Reykjavíkur og Akureyrar. Vissulega væri farsælt að hafa tvo upphafsflugvelli sjúkraflutninga að þessu gerðu – og raun þyrfti líka að hafa neyðar- og hjálparþyrlur staðsettar í tveimur landshlutum og þá einmitt á sömu stöðum og tvíhreyflurnar.
Telur þú það ofverk ríkisins að halda úti skurðlæknaþjónustu í Vestmannaeyjum?
– Nei – án þess að skilgreina hvað rétt og fært er að hafa af slíku í Vestmannaeyjum – þ.e. hvers konar aðgerðir skulu þar gerðar. Vonandi tekst að endurlífga nauðsynlega þjónustu þar.
Finnst þér í lagi að konur í Vestmannaeyjum þurfi að fæða börn sín uppi á landi með tilheyrandi óhagræði og miklum kostnaði?
– Nei, að sjálfsögðu ekki og löngu kominn tími til að reikna út heildar samfélagskostnað af þessu sérstæða ráðslagi. Inni í tölunni er raunkostnaður foreldra og fjölskyldna o.fl. Búast má við að samfélagskostnaðurinn opinberaði að sparnaðartölur á reikningum ríksins af fæðingum utan Eyja dygðu ekki til að réttlæta þessa skerðingu sjúkrahúsþjónustu og það annað sem fylgt hefur nákvæmlega niðurskurði á fæðingarþjónustunni.
Páll Magnússon:
�?að er staðreynd að rekstur HSU á Suðurlandi er vanfjármagnaður og fari sem horfir verður stofnunin að skerða þjónustu á næsta ári. Hvar sjáið þið helst möguleika á niðurskurði?
– �?að eru engir möguleikar á frekari niðurskurði, þvert á móti þarf að auka fjárveitingar stofnunarinnar og bæta þjónustu.
Finnst þér ásættanlegt að sjúkraflug verði með óbreyttu fyrirkomulagi? Ein flugvél staðsett á Akureyri sem þjóna á öllu landinu?
– �?breytt fyrirkomulag í sjúkraflugi er ótækt. Tillaga sem lögð hefur verið fram, m.a. af Vilhjálmi Árnasyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Styrmi Sigurðarsyni yfirmanni sjúkraflutninga á HSU, um sjúkraþyrlur er hugmynd sem vert er að skoða alvarlega. Sjúkraþyrla, skipuð bráðatækni og bráðalækni á vakt allan sólarhringinn gerir það að verkum að viðbragðstími myndi styttast verulega. Slíkt getur skipt sköpum, því við vitum það að hver mínúta getur skipt máli þegar alvarleg veikindi eða slys ber að garði.
Telur þú það ofverk ríkisins að halda úti skurðlæknaþjónustu í Vestmannaeyjum?
– Nei, þetta er skilyrðislaus og sanngjörn krafa.
Finnst þér í lagi að konur í Vestmannaeyjum þurfi að fæða börn sín uppi á landi með tilheyrandi óhagræði og miklum kostnaði?
– �?að er með öllu ótækt. Að sjálfsögðu eiga konur að eiga þann kost að eiga börn í sínum heimabæ, ekki síst í ljósi þess hversu samgöngur eru ótryggar.

Nýjustu fréttir

Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.