Kvöldopnun verslanna í kvöld

Í kvöld verða margar verslanir bæjarins með opið til kl 22:00. Tilefnið er bleikur október en í ár er verið að vekja athygli á brjóstakrabbameini. Flestar verslanirnar ætla svo að afhenta Eyjarós part af ágóða kvöldsins. Tilvalið tækifæri til að eiga góða stund í miðbænum. (meira…)

Páll Magnússon – Stóru málin í Eyjum

Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið í ríkisstjórn í rúm 3 ár. Á þessum skamma tíma hefur orðið alger viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs og á lífsgæðum almennings. Sá viðsnúningur á rætur sínar annars vegar í hagfelldum ytri aðstæðum og hins vegar í skynsamlegri forystu Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn. Hallarekstri var snúið við og skuldir greiddar niður. �?að eru […]

Heilbrigðismál í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi: Aðeins Páll Valur, Ari Trausti og Páll Magnússon svöruðu

Eyjafréttir sendu Sigurði Inga Jóhannssyndi forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins, Páli Magnússyni Sjálfstæðisflokki, Oddnýju Harðardóttur Samfylkingu, Ara Trausta Guðmundssyni Vinstri grænum, Páli Val Björnssyni Bjartri framtíð, Smára MacCarthy Pírötum, Jónu Sólveigu Elínardóttur Viðreisn, Guðmundi Sighvatssyni Alþýðufylkingunni og Sturlu Hólm Jónssyni Dögun sem öll eru oddvitar framboðanna í Suðurkjördæmi nokkrar spurningar um stöðu heilbrigðismála á Suðurlandi og […]

Páll Magnússon – Veljum öryggi – höfnum óvissu!

�?að er alveg sama hvar borið er niður í dag og hvaða alþjóðlegu mælikvarðar eru skoðaðir – Ísland skorar alltaf hæst: ríkissjóði hefur verið snúið úr gegndarlausum hallarekstri í afgang; atvinnuleysi er nú bara tölfræðilegt, rúmlega 2%, sem þýðir á mannamáli að það er ekkert atvinnuleysi; hagvöxtur á Íslandi hefur verið meiri að undanförnu en […]

AUGLÝSING UM KJ�?RSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM.

Kjörstaður í Vestmannaeyjum vegna alþingiskosninga sem fram fara 29. október 2016 verður í Barnaskóla Vestmannaeyja, inngangur um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr. Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 að kveldi sama dags. Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir: Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með […]

Tónleikar með Eyþóri Inga

Söngvarinn og Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun vera með tónleika á Háaloftinu á laugardaginn kl. 20:00. Tónleikarnir verða með óhefðbundnu sniði þar sem Eyþór mun fara með gamanmál á milli þess sem hann þenur raddböndin. Nú ertu óumdeilanlega þekktastur fyrir sönghæfileika þína, hvað mun fólk líka fá að sjá á laugardaginn? �??�?g mun vera með […]

Ari Eldjárn og Björn Bragi snúa nú bökum saman á Háaloftinu

Félagarnir Ari Eldjárn og Björn Bragi snúa nú bökum saman á Háaloftinu í kvöld kl. 21.00. �?eir fara nú rúnt um landið á haustmánuðum en þeir hafa um árabil verið tveir af allra fyndnustu og eftirsóttustu uppistöndurum Íslands. Ari og Björn eru báðir meðlimir í uppistandshópnum Mið-Ísland en sýningar þeirra félaga í �?jóðleikhúsinu eru vinsælustu […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.