Félagarnir Ari Eldjárn og Björn Bragi snúa nú bökum saman á Háaloftinu í kvöld kl. 21.00. �?eir fara nú rúnt um landið á haustmánuðum en þeir hafa um árabil verið tveir af allra fyndnustu og eftirsóttustu uppistöndurum Íslands. Ari og Björn eru báðir meðlimir í uppistandshópnum Mið-Ísland en sýningar þeirra félaga í �?jóðleikhúsinu eru vinsælustu uppistandssýningar Íslands frá upphafi og hleypur sýningafjöldinn á hundruðum og gestafjöldinn á tugum þúsunda.
�??Á tæpasta vaði�?? er tveggja klukkustunda uppistandssýning þar sem þeir félagarnir skiptast á að flytja lengra uppistand en venjulega, um allt milli himins og jarðar. �?að er óhætt að segja að hér sé á ferðinni skemmtun sem engin má láta framhjá sér fara og því er um að gera að tryggja sér miða ef þig langar að hlæja þig máttlausa/n eina kvöldstund.
Forsala miða verður í Tvistinum og er í fullum gangi.
Miðaverð eru 3.900 kr en fyrstu 100 miðarnir verða seldir á sérstöku tilboðsverði; aðeins 2.900 kr.
Ekkert aldurstakmark er á sýninguna, en sum efnistök eru ekki við hæfi ungra barna.