Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Screenshot
Jón Þór Guðjónsson.

Aðsend grein

Jón Þór Guðjónsson

Af hverju sjálfkeyrandi bílar? Það er líklega svipuð spurning og af hverju við fórum úr hestvögnum yfir í bíla. Fyrir mér snýst þetta um þægindi og tímasparnað.

Manneskjan hefur alltaf sóst eftir því að gera lífið auðveldara. Við erum veik fyrir þægindum. Þó er ég kannski ekki besta dæmið um það, enda keyri ég um á Toyota Land Cruiser 2006 árgerð og hef gaman af því að gera hlutina stundum aðeins erfiðari en þeir þurfa að vera. En það þýðir ekki að ég vilji ekki hafa valið.

Hugsið ykkur að geta sest upp í bíl á leið í vinnuna og nýtt tímann í eitthvað allt annað en að keyra (það á kannski ekki við þessar 2 mínútur í eyjum). Eða að geta sent bílinn eftir barninu sínu á æfingu þegar veðrið er leiðinlegt og maður sjálfur fastur í vinnunni. Slíkt myndi auðvitað krefjast öruggrar tækni og skýrra reglna, en möguleikarnir eru fjölmargir.

Ég tel að sjálfkeyrandi bílar eigi eftir að verða stór hluti af framtíðarsamgöngum. Spurningin er hvernig og hvenær við Íslendingar viljum taka þátt í þeirri þróun.

Bíllinn sér meira en bara veglínurnar

Í umræðunni um sjálfkeyrandi bíla í Eyjum hafa margir bent á lélegar vegmerkingar, ástand gatna og veðurfar. Allt eru þetta eðlilegar áhyggjur, en tæknin er komin svolítið lengra en það.

Við notum augu, eyru og heila til að átta okkur á umhverfinu og taka ákvarðanir í umferðinni. Sjálfkeyrandi bílar nota hins vegar myndavélar, skynjara og öflugar tölvur sem vinna úr upplýsingum með gervigreind.

Mörg sjálfkeyrandi kerfi nota svokallað LIDAR (Light Detection and Ranging), sem notar leysigeisla til að búa til þrívíddarmynd af umhverfinu. Radar notar útvarpsbylgjur til að greina hluti, fjarlægðir og hraða þeirra. Myndavélarnar greina meðal annars umferðarljós, vegmerkingar, skilti og fleira.

Þegar allir þessir skynjarar eru að dæla upplýsingum inn í öfluga tölvu sem vinnur úr þeim á sekúndubroti, þá er orðið erfitt fyrir manneskju að keppa við það.

Svo er það mannlegi þátturinn. Við getum verið þreytt, annars hugar, upptekin í símanum eða jafnvel undir áhrifum áfengis. Tölvan verður ekki þreytt, missir ekki athyglina við að skoða skilaboð og getur fylgst með umhverfinu úr mörgum áttum samtímis.

Það þýðir ekki að hún geri aldrei mistök. Þess vegna þarf auðvitað að prófa hvernig tæknin ræður við íslenskar aðstæður. Ef hún getur dregið úr slysum sem verða vegna mannlegra mistaka er það eitt og sér ansi stór ávinningur.

Tesla hefur í mörg ár safnað gögnum úr bílaflotanum sínum til að þróa sjálfkeyrandi tæknina. Teslurnar sem keyra hér um götur Eyjanna geta því líka lagt sitt af mörkum til þeirrar þróunar. Við erum ekki endilega að byrja á núlli.

Af hverju Vestmannaeyjar?

Við búum á lítilli eyju með stuttar vegalengdir og fjölbreyttar aðstæður. Hér fáum við mikinn vind, rigningu, hálku og myrkur yfir vetrartímann sem gerist vissulega annarstaðar á landinu en við erum best í því. Við erum með lítið og afmarkað gatnakerfi þar sem hægt væri að prófa tæknina við fjölbreyttar aðstæður án þess að þurfa að takast á við heilt höfuðborgarsvæði.

Við höfum líka byggt upp hleðsluinnviði fyrir rafbíla og ég held að það sé hvergi á landinu eins margar hleðslustöðvar á jafn fáum ferkílómetrum eins og hér.

Svo er það ferðaþjónustan. Við fáum fjölmennar helgar, skemmtiferðaskip og ferðamenn sem koma með Herjólfi. Þetta gæti minnkað þörfina fyrir túristann að taka bílinn með sér yfir og myndi því losna um meira pláss fyrir heimamenn. Þannig við fengjum allan skalann af notenda prófunum.

Við þurfum ekki að byrja á ökumannslausum bílum

Ég veit nú ekki hvernig ríkið myndi vilja gera þetta en ég sæi fyrir mér að hægt væri að skoða innleiðinguna í áföngum.

Fyrsta skrefið gæti verið að leyfa FSD (full self driving) sem er fítús sem margir keyptu með sinni Tesla bifreið en þeir geta í raun ekki notað eins og stendur.

Þá myndi bíllinn annast stóran hluta akstursins, en ökumaðurinn væri áfram ábyrgur fyrir því að fylgjast með og grípa inn í ef þörf krefði. Þið getið skoðað myndbönd á netinu til að sjá hvernig það virkar. Bíllinn passar alveg upp á að þú sért að fylgjast með.

Ef vel tækist þá væri hægt að kanna næsta áfanga, sem væri sérstök ökumannslaus farþegaþjónusta eins og Tesla Robotaxi eða Waymo.

Samkvæmt umferðarlögum er nú þegar hægt að fá leyfi Samgöngustofu til að prófa sjálfkeyrandi bíla. Við þurfum því ekki að bíða eftir einhverri allsherjar lagabreytingu til að byrja að skoða þetta.

En eigum við ekki frekar að laga höfnina?

Samgöngur milli lands og Eyja eru eitt mikilvægasta hagsmunamál okkar. Það breytist ekki við að skoða nýja tækni. En af hverju þarf þetta að vera annaðhvort eða? Þetta kemur ekki úr sama poka þó að innviðaráðherra þurfi að svara fyrir bæði.

Ef ríkið hefur áhuga á að gera Vestmannaeyjar að tilraunasvæði væri eðlilegt að ræða hvernig verkefnið yrði fjármagnað og hvaða innviðir þyrftu að vera til staðar. Ef það þyrfti til dæmis að bæta vegmerkingar, götur eða fjarskipti þá væri líklega fjármögnun fyrir því hluti af verkefninu. Þá gætu úrbætur nýst öllum bæjarbúum, ekki bara sjálfkeyrandi bílunum.

Verkefnið gæti einnig skapað tækifæri fyrir staðbundin störf við eftirlit, viðhald, þjónustu og rannsóknir. Ég sé ekki fyrir mér að Vestmannaeyjabær eigi að fjármagna slíkt verkefni einn og sér. Miklu frekar að sveitarfélagið verði samstarfsaðili ríkisins.

Hugmynd sem hefur verið til umræðu í nokkur ár

Í desember 2023 ræddi Davíð Guðmundsson (Davíð í Tölvun) við Eyjafréttir þann möguleika að Eyjar yrði tilraunasveitarfélag fyrir sjálfkeyrandi farartæki.

Nú, tæpum þremur árum síðar, er tæknin komin lengra og hugmyndin hefur ratað inn í umræðu á Alþingi þökk sé Sigríði Á. Andersen og innviðaráðherra tók vel í það.

Þurfum við jafn marga bíla í framtíðinni?

Það er oft talað um að einkabíllinn standi kyrr um 95% tímans. Hugsið ykkur allt plássið sem fer undir bílastæði fyrir bíla sem eru nánast aldrei í notkun.

Ég er sjálfur mikill bílakall og ætla ekkert að hætta að eiga dísel jeppa. Ég vil komast upp á hálendi og geta keyrt landshorna á milli, og rafbílar og hleðsluinnviðir eru bara ekki komnir nægilega langt fyrir mínar þarfir. Ég skil líka vel að margir, þar á meðal ferðamenn, vilji frekar hafa sinn eigin bíl og treysti betur á eldsneytisbíla.

Á höfuðborgarsvæðinu hefur lengi verið reynt að draga úr þörfinni fyrir einkabíla, meðal annars með því að fækka bílastæðum við nýbyggingar. En fólk þarf samt að komast á milli staða og strætó pakkaður í selló er ekki lausnin.

Þarna gætu sjálfkeyrandi bílar komið sterkir inn. Í stað þess að standa allan daginn í bílastæði gæti sami bíllinn verið að skutla fólki fram og til baka. Þetta er alls ekki lausn fyrir alla, bara einn valkostur í viðbót.

Framtíðin er ekki bara fyrir höfuðborgina

Vestmannaeyingar hafa alltaf verið miklir frumkvöðlar. Hér er ótrúlega mikið af duglegu og úrræðagóðu fólki sem hefur ekki verið hrætt við að prófa nýja hluti, taka áhættu og skapa sín eigin tækifæri. Nýsköpun og frumkvæði eru að mínu mati stór hluti af því sem gerir samfélagið okkar sérstakt.

Þess vegna finnst mér hugmyndin um sjálfkeyrandi bíla passa vel við Vestmannaeyjar. Við eigum ekki að þurfa að bíða eftir því að allar nýjungar séu fyrst prófaðar á höfuðborgarsvæðinu. Af hverju ættum við ekki að geta verið í fararbroddi þegar kemur að þróun nýrra samgöngulausna?

Við komumst aldrei að því hvað tæknin getur gert fyrir okkur ef við erum ekki tilbúin að prófa hana.

Sjálfkeyrandi bílar eru þegar orðnir raunverulegur hluti samgangna á ákveðnum stöðum í heiminum. Þróunin heldur áfram, hvort sem við tökum þátt í henni eða ekki.

Framtíðin er ekki bara fyrir höfuðborgina. Ég vil að Vestmannaeyjar taki þátt í að kanna þessa framtíð, í stað þess að bíða eftir að hún komi til okkar.

 

Jón Þór Guðjónsson

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Miðflokksins í Eyjum. 

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.