Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Val á endurskoðanda Vestmannaeyjabæjar er enn til skoðunar. Samsett mynd.

Vestmannaeyjabær segir að upplýsingar sem komu fram eftir afgreiðslu bæjarráðs á vali endurskoðanda hafi varðað forsendur verðfyrirspurnarinnar. Málið er enn til skoðunar og áætlað að það verði tekið fyrir að nýju 4. nóvember.

Þetta kemur fram í svari bæjarins við eftirfylgni Eyjafrétta vegna málsins. Bæjarráð hafði samþykkt að taka tilboði KPMG í endurskoðun og uppgjör bæjarins fyrir árin 2026–2028, með möguleika á framlengingu um tvö ár.

Bæjarstjórn staðfesti hins vegar ekki afgreiðsluna á fundi sínum 13. október. Þar óskaði Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, eftir því að málinu yrði vísað aftur til bæjarráðs í ljósi nýrra upplýsinga. Var það samþykkt samhljóða.

Forsendur til frekari skoðunar

Í upphaflegri fundargerð bæjarráðs kom fram að leitað hefði verið til Deloitte og KPMG sem aðila með starfsstöðvar í Vestmannaeyjum. Tilboð bárust frá báðum fyrirtækjum og fékk tilboð KPMG hærra heildarmat samkvæmt þeim matsþáttum sem lagðir voru til grundvallar.

Eyjafréttir óskuðu eftir skýringum á lýsingunni á starfsstöð KPMG, auk upplýsinga um tilboðsfjárhæðir, matsþætti og fyrirkomulag þjónustunnar í Eyjum.

Í svari bæjarins við fyrirspurn Eyjafrétta segir að við meðferð málsins hafi verið byggt á þeim upplýsingum sem þá lágu fyrir. Eftir birtingu fundargerðarinnar 8. október hafi komið fram upplýsingar sem vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar og gáfu tilefni til frekari athugunar áður en endanleg ákvörðun yrði tekin.

Bærinn tilgreinir ekki hvaða upplýsingar þetta voru og telur ekki rétt að fjalla nánar um einstök atriði meðan skoðunin stendur yfir.

Matsblað ekki afhent

Eyjafréttir óskuðu jafnframt eftir tilboðsgögnum og samanburði eða matsblaði sem lá til grundvallar afgreiðslu bæjarráðs.

Bærinn telur matsblaðið innra vinnugagn, útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar, og vísar til 8. greinar upplýsingalaga sem grundvallar þess að afhenda það ekki. Blaðið hafi ekki að geyma endanlega ákvörðun eða niðurstöðu í málinu.

Áður en afstaða verður tekin til afhendingar tilboðsgagnanna hyggst bærinn meta hvort þau hafi að geyma upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni tilboðsgjafanna, með vísan til 9. greinar upplýsingalaga. Leitað verður afstöðu fyrirtækjanna og síðan ákveðið hvort veita megi aðgang að gögnunum í heild eða að hluta.

Endanlegt val á endurskoðanda liggur því ekki fyrir. Áætlað er að málið verði tekið fyrir að nýju 4. nóvember.

 


Fyrri frétt:

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að vísa máli um val á endurskoðanda bæjarins aftur til bæjarráðs. Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, óskaði eftir því í ljósi nýrra upplýsinga. Bæjarráð hafði áður samþykkt að taka tilboði KPMG í endurskoðun og uppgjör Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2028, með möguleika á framlengingu um tvö ár. Tilboð […]

Nýjustu fréttir

Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.