Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa máli um val á endurskoðanda Vestmannaeyjabæjar aftur til bæjarráðs í ljósi nýrra upplýsinga. Mynd: Eyjafréttir/TMS

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að vísa máli um val á endurskoðanda bæjarins aftur til bæjarráðs. Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, óskaði eftir því í ljósi nýrra upplýsinga.

Bæjarráð hafði áður samþykkt að taka tilboði KPMG í endurskoðun og uppgjör Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2028, með möguleika á framlengingu um tvö ár. Tilboð bárust frá Deloitte og KPMG. Samkvæmt fundargerð bæjarráðs fékk tilboð KPMG hærra heildarmat samkvæmt þeim matsþáttum sem lagðir voru til grundvallar.

Í sömu fundargerð var tekið fram að leitað hefði verið til fyrirtækja með starfsstöðvar í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir höfðu óskað eftir skýringum frá bænum á því að KPMG væri sagt með starfsstöð í Vestmannaeyjum, ásamt upplýsingum um tilboðsfjárhæðir, matsþætti og fyrirkomulag þjónustunnar í Eyjum.

Ekki liggur fyrir hvaða nýju upplýsingar urðu tilefni þess að málinu var vísað aftur til bæjarráðs.

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.