Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að vísa máli um val á endurskoðanda bæjarins aftur til bæjarráðs. Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, óskaði eftir því í ljósi nýrra upplýsinga. Bæjarráð hafði áður samþykkt að taka tilboði KPMG í endurskoðun og uppgjör Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2028, með möguleika á framlengingu um tvö ár. Tilboð […]

Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðurland frá klukkan 5 til 10 í fyrramálið, miðvikudaginn 14. október. Lögreglan í Vestmannaeyjum hvetur til sérstakrar aðgátar þegar börn og ungmenni eru á leið til skóla. Spáð er austan og norðaustan stormi, 18–28 metrum á sekúndu, og vindhviðum staðbundið yfir 40 metrum á sekúndu. Hvassast verður […]

Hver er bestur, Óli prestur

Óli Jói, eins og hann er gjarnan kallaður, fer um víðan völl með Svövu Kristínu og rifjar upp skemmtilega tíma úr kirkjunni en hann starfaði lengi sem prestur á höfuðborgarsvæðinu áður en hann hélt aftur heim til Vestmannaeyja þegar hann tók óvænt við stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs. Það hefur svo sannarlega gengið á ýmsu frá því […]

SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta

lodna_mid_op

Möguleg hækkun loðnuráðgjafar eftir áramót gæti bætt horfur fyrir komandi vertíð. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi leggja þó áherslu á að viðbótin þurfi að liggja tímanlega fyrir svo fyrirtækin geti skipulagt veiðar og vinnslu. Í nýrri umfjöllun á Radarnum, vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, er bent á að enn sé möguleiki á stærri loðnukvóta á fiskveiðiárinu […]

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending

1630. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður haldinn í Ráðhúsinu í dag, þriðjudaginn 13. október, klukkan 14:00. Eyjafréttir streyma fundinum í beinni útsendingu. Meðal mála á dagskrá eru fjárlög og þingveturinn framundan, kosningar í ráð, nefndir og stjórnir og yfirferð bæjarstjóra á helstu málum. Þá liggur breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein fyrir til staðfestingar, vegna líkamsræktarsalar […]

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds

herjolfur_b-3.jpg

Sjö ferðir Herjólfs falla niður þriðjudaginn 27. og miðvikudaginn 28. október vegna nauðsynlegs viðhalds á skipinu. Samkvæmt tilkynningu Herjólfs ohf. geta viðhaldsverkefnin ekki beðið fram að næstu slipptöku og ekki er hægt að vinna þau á meðan skipið er í siglingum. Þrjár ferðir falla niður síðdegis og að kvöldi þriðjudags og fjórar fyrri hluta miðvikudags. […]

Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun

Herjólfur siglir tvær ferðir til Landeyjahafnar síðdegis í dag, þriðjudaginn 13. október. Á morgun, miðvikudag, verður siglt til Þorlákshafnar. Brottfarir frá Vestmannaeyjum í dag verða klukkan 17:00 og 19:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 18:15 og 20:45. Aðrar ferðir falla niður. Tvær ferðir til Þorlákshafnar á miðvikudag Á morgun, miðvikudaginn 14. október, verður siglt samkvæmt eftirfarandi […]

Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör

Innviðaráðuneytið hefur staðfest að á þessu ári hafi þrjár uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar verið úrskurðaðar ólögmætar. Úrskurðirnir voru kveðnir upp 11. júní, 4. ágúst og 28. ágúst – allir á aðeins 78 daga tímabili. Þetta eru alvarlegar staðreyndir sem bæjaryfirvöld geta ekki afgreitt sem þrjú ótengd starfsmannamál. Uppsögn er meðal íþyngjandi ákvarðana sem opinber vinnuveitandi tekur […]

Vinnslustöðin á erlendum vettvangi

IMG 5989

Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi Vinnslustöðvarinnar, fer yfir umfang starfseminnar erlendis, framleiðsluna og verkefnin fram undan í myndbandsviðtali sem birt er á vef Vinnslustöðvarinnar. Í viðtalinu ræðir Sverrir meðal annars þátttökuna í sjávarútvegssýningunni Conxemar í Vigo á Spáni. Þá segir hann frá framleiðslunni erlendis og því sem fram undan er, meðal annars sýningu í Kína. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.