Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
herjolfur_b-3.jpg
Herjólfur bundinn við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Sjö ferðir Herjólfs falla niður þriðjudaginn 27. og miðvikudaginn 28. október vegna nauðsynlegs viðhalds á skipinu. Samkvæmt tilkynningu Herjólfs ohf. geta viðhaldsverkefnin ekki beðið fram að næstu slipptöku og ekki er hægt að vinna þau á meðan skipið er í siglingum.

Þrjár ferðir falla niður síðdegis og að kvöldi þriðjudags og fjórar fyrri hluta miðvikudags.

Ferðir sem falla niður

Dagur Frá Vestmannaeyjum Frá Landeyjahöfn
Þriðjudagur 27. október 17:00 18:15
Þriðjudagur 27. október 19:30 20:45
Þriðjudagur 27. október 22:00 23:15
Miðvikudagur 28. október 07:00 08:15
Miðvikudagur 28. október 09:30 10:45
Miðvikudagur 28. október 12:00 13:15
Miðvikudagur 28. október 14:30 15:45

Verði ófært til Landeyjahafnar fellur síðari ferð til Þorlákshafnar niður á þriðjudeginum og fyrri ferð á miðvikudeginum.

Siglt fyrr ef viðgerðir ganga vel

Gert er ráð fyrir að þessum tíma verði varið til viðgerðanna. Gangi vinnan betur en reiknað er með verður siglt um leið og verkinu lýkur.

Herjólfur ohf. þakkar farþegum skilning vegna raskana á siglingum.

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.