Möguleg hækkun loðnuráðgjafar eftir áramót gæti bætt horfur fyrir komandi vertíð. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi leggja þó áherslu á að viðbótin þurfi að liggja tímanlega fyrir svo fyrirtækin geti skipulagt veiðar og vinnslu.
Í nýrri umfjöllun á Radarnum, vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, er bent á að enn sé möguleiki á stærri loðnukvóta á fiskveiðiárinu 2026/2027, þrátt fyrir að haustráðgjöf hafi reynst töluvert undir væntingum.
Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands leggja nú til að afli verði ekki meiri en 105.773 tonn. Það er um 70% lækkun frá upphafsráðgjöfinni, sem nam 358.044 tonnum. Samkvæmt SFS kæmu tæp 86 þúsund tonn í hlut Íslands miðað við nýju ráðgjöfina.
Hafrannsóknastofnun telur líklegt að veiðistofninn sé vanmetinn í haustmælingunni. Vegna óveðurs og hafíss tókst ekki að mæla allt nyrsta útbreiðslusvæði loðnunnar.
Lokaráðgjöf verður gefin út að loknum vetrarmælingum eftir áramót. Niðurstöður þeirra munu því ráða miklu um endanlegar horfur vertíðarinnar.
SFS bendir á að miklar vendingar milli loðnumælinga séu þekktar. Það skipti hins vegar ekki aðeins máli hversu mikil viðbót verði, heldur einnig hvenær hún liggi fyrir.
Samtökin rifja upp vertíðina 2022/2023. Haustráðgjöfin nam þá rúmum 218 þúsund tonnum en var aukin í tveimur skrefum í febrúar. Stærsta viðbótin, rúm 184 þúsund tonn, kom 24. febrúar og lokaráðgjöfin varð tæp 460 þúsund tonn.
Að mati SFS höfðu fyrirtækin þá lítið svigrúm til að endurskipuleggja veiðar og vinnslu áður en hrognataka hófst. Hefði viðbótin verið fyrirséð hefðu veiðar hafist fyrr og stærri hluti aflans farið í aðrar afurðir.
Samtökin segja að metframleiðsla loðnuhrogna árið 2023 hafi orðið meiri en eftirspurnin réð við. Í kjölfarið hafi verð lækkað umtalsvert og birgðir hlaðist upp.
Samkvæmt umfjöllun SFS hefjast veiðar almennt fyrr þegar loðnukvótinn er stærri. Þá fari hlutfallslega meira af aflanum í mjöl og lýsi áður en kemur að hrognatöku undir lok vertíðar.
Því fyrr sem mögulegur viðbótarkvóti liggi fyrir, þeim mun betur sé hægt að skipuleggja veiðar og vinnslu og ná meiri verðmætum úr vertíðinni, að mati samtakanna.