Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Appelsínugul viðvörun gildir á Suðurlandi frá klukkan 5 til 10 í fyrramálið. Veðurstofan varar við engu ferðaveðri og vindhviðum staðbundið yfir 40 m/s. Eyjafréttir/TMS

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðurland frá klukkan 5 til 10 í fyrramálið, miðvikudaginn 14. október. Lögreglan í Vestmannaeyjum hvetur til sérstakrar aðgátar þegar börn og ungmenni eru á leið til skóla.

Spáð er austan og norðaustan stormi, 18–28 metrum á sekúndu, og vindhviðum staðbundið yfir 40 metrum á sekúndu. Hvassast verður syðst á svæðinu og talsverð rigning á láglendi. Veðurstofan segir ekkert ferðaveður og varar við því að lausamunir geti fokið.

Veðrið verst þegar skólastarf hefst

Í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum kemur fram að búist sé við mjög hvössum vindi og snörpum vindhviðum í nótt og fyrramálið. Samkvæmt spá verði veðrið hvað verst um það leyti sem börn og ungmenni eru á leið til skóla.

Foreldrar og forráðamenn eru beðnir að fylgjast vel með aðstæðum. Lögreglan hvetur fólk til að fara varlega á leið til skóla og vinnu og gæta sérstaklega að börnum og öðrum vegfarendum. Bæjarbúar eru jafnframt hvattir til að tryggja lausamuni til að draga úr hættu á tjóni og slysum.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.