Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herjólfur siglir tvær ferðir til Landeyjahafnar síðdegis í dag, þriðjudaginn 13. október. Á morgun, miðvikudag, verður siglt til Þorlákshafnar.

Brottfarir frá Vestmannaeyjum í dag verða klukkan 17:00 og 19:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 18:15 og 20:45. Aðrar ferðir falla niður.

Tvær ferðir til Þorlákshafnar á miðvikudag

Á morgun, miðvikudaginn 14. október, verður siglt samkvæmt eftirfarandi áætlun:

  • Frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og 16:00.
  • Frá Þorlákshöfn klukkan 10:45 og 19:45.

 

Síðari brottför frá Eyjum færist því frá klukkan 17:00 til 16:00 og síðari brottför frá Þorlákshöfn frá klukkan 20:45 til 19:45.

Í tilkynningu Herjólfs er bent á að gul veðurviðvörun gildi á Suðurlandi í fyrramálið. Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með miðlum félagsins, verði þörf á breytingum á áætlun.

Tilkynning um siglingar á fimmtudag verður gefin út í síðasta lagi klukkan 6 á fimmtudagsmorgun.

Minna á búnað fyrir gistirými

Farþegar sem ætla að nýta gistirými ferjunnar þurfa að koma með eigin búnað.

Þá minnir Herjólfur á að á þessum árstíma sé alltaf hætta á að siglingar færist milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja farartæki eftir í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.