Hver er bestur, Óli prestur
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, er fyrsti viðmælandi í nýjum spjallþætti, með Svövu :: Þátturinn er einstaklega líflegur og skemmtilegur í anda viðmælandans
Ólafur Jóhann Borgþórsson er fyrsti viðmælandi Svövu Kristínar í nýjum sjónvarpsþætti Eyjafrétta.

Óli Jói, eins og hann er gjarnan kallaður, fer um víðan völl með Svövu Kristínu og rifjar upp skemmtilega tíma úr kirkjunni en hann starfaði lengi sem prestur á höfuðborgarsvæðinu áður en hann hélt aftur heim til Vestmannaeyja þegar hann tók óvænt við stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs.

Það hefur svo sannarlega gengið á ýmsu frá því Óli Jói lagði hempuna á hilluna og hóf störf hjá Herjólfi snemma á síðasta ári og kemur hann inn á það þegar met var slegið í síðasta mánuði, þá fór Herjólfur í sína tvöhundruðustu ferð til Þorlákshafnar á þessu ári. Met sem verður vonandi aldrei slegið.

Óli Jói var aðeins 25 ára þegar hann útskrifaðist úr guðfræðinni og segir hann aldurinn lítið hafa hjálpað sér í að líta út sem virðulegur prestur en hann hefur alltaf verið frekar hávær og það breyttist ekki eftir að hann varð prestur. „Ég var þarna beðin um að lækka í hljóðkerfinu, en vandinn var sá að það var ekkert hljóðkerfi” Sögurnar eru margar og húmorinn aldrei langt undan hjá Óla Jóa sem rifjar það einnig upp þegar hann fór í framboð í Seljakirkju. „Það er ekki mjög kristilegt að hampa sjálfum sér svona” sagði Óli Jói um slagorðið sitt, „Hver er bestur – Óli Prestur”

Þáttinn í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.