Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

1630. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður haldinn í Ráðhúsinu í dag, þriðjudaginn 13. október, klukkan 14:00. Eyjafréttir streyma fundinum í beinni útsendingu.

Meðal mála á dagskrá eru fjárlög og þingveturinn framundan, kosningar í ráð, nefndir og stjórnir og yfirferð bæjarstjóra á helstu málum.

Þá liggur breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein fyrir til staðfestingar, vegna líkamsræktarsalar og niðurrifs klefa.

Einnig verða teknir fyrir liðir úr fundargerðum bæjarráðs sem varða fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027, viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 og tilboð í endurskoðun bæjarins fyrir árin 2026–2028. Þá liggur fyrir tillaga um þóknun fyrir fundarsetu í öldungaráði og samráðshópi um fatlað fólk.

Auk þess verða fundargerðir annarra ráða bæjarins lagðar fram til upplýsinga.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér fyrir neðan frá klukkan 14:00.

Dagskrá:

  1. Fjárlög og þingveturinn framundan – 202609194  
  2. Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar – 202605181 
  3. Bæjarstjóri: Yfirferð helstu mála – 202606190 
  4. Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja – 333 Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.
  5. Fjölskyldu- og tómstundarráð Vestmannaeyja – 334 Liðir 1-6 liggja fyrir til upplýsinga.

     

  6. Bæjarráð Vestmannaeyja – 3264 Liður 2, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir til staðfestingar.

    Liðir 1 og 3-13 liggja fyrir til upplýsinga.

     

  7. Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 445 Liður 1, Deiliskipulag Íþróttasvæðis við Hástein – breyting líkamsræktarsalur og niðurrif klefa, liggur fyrir til staðfestingar.

    Liðir 2-9 liggja fyrir til upplýsinga.

     

  8. Fræðsluráð Vestmannaeyja – 409 Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.

     

  9. Framkvæmda – og hafnarráð Vestmannaeyja – 343 Liðir 1-10 liggja fyrir til upplýsinga.

     

  10. Framkvæmda – og hafnarráð Vestmannaeyja – 344 Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga.

     

  11. Bæjarráð Vestmannaeyja – 3265 Liður 2, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir til staðfestingar.

    Liður 7, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar.

    Liður 11, Tilboð í endurskoðun Vestmannaeyjabæjar 2026-2028 liggur fyrir til staðfestingar.

    Liður 12, Notendaráð, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða tillögu um þóknun fyrir fundarsetu í öldungaráði og samráðshópi um fatlað fólk.

    Liður 1, 3-6, 8-10 og 13-19 liggja fyrir til upplýsinga.

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.