Hrekkjavakan nálgast óðfluga og það má vel sjá á Bókasafni Vestmannaeyja, sem hefur nú verið skreytt hátt og lágt í tilefni hennar.
Ýmsar hrekkjavökuskreytingar hafa verið settar upp á safninu og setja þær skemmtilegan svip á safnið þessa dagana.
Í dag er opið frá 12-15 og býðst krökkum að koma á bókasafnið og föndra hrekkjavökuföndur ásamt því að lita og skreyta bókamerki.
Bókasafnið verður með sérstaka dagskrá í tilefni hrekkjavökunnar laugardaginn 31. október. Þá verður opið frá klukkan 12:00 til 15:00 og boðið upp á hrekkjavökufjör á safninu.
Klukkan 13:00 verður sögustund í myrkri þar sem lesið verður í dularfullri stemningu. Krökkum er boðið að taka með sér vasaljós.