Karlalið ÍBV í fótbolta mætti KA á Akureyri í lokaumferð Bestu deildar karla í dag, þar sem KA hafði að betur með 5–1 sigri.
Heimamenn í KA byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á þriðju mínútu þegar Jakob Snær Árnason kom boltanum í netið. ÍBV jafnaði metin á 17. mínútu þegar Heiðmar Þór Magnússon skallaði boltann í netið og skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir félagið í efstu deild.
KA menn sóttu hins vegar í sig veðrið þegar leið á fyrri hálfleikinn og náðu aftur forystunni á 38. mínútu þegar Mikael Breki Bárðarson skoraði annað mark heimamanna. Á lokamínútu fyrri hálfleiks bætti Hallgrímur Mar Steingrímsson svo þriðja markinu við með góðu skoti. Staðan var því 3-1 fyrir KA þegar gengið var til búningsherbergja.
Hallgrímur Mar Steingrímsson bætti við fjórða marki KA á 57. mínútu og sínu öðru marki í leiknum. KA jók forskotið enn frekar á 70. mínútu þegar Adam Ægir Pálsson skoraði fimmta mark heimamanna og kom stöðunni í 5–1.
Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 5–1 sigur KA. Það dugði þó ekki til að halda liðinu í deildinni, þar sem Þór vann FH á útivelli, 2–1, í leik sem fór fram á sama tíma. Stjarnan tryggði sér efsta sætið í neðri hlutanum með 6-0 sigri á Val.
Lokaniðurstaða neðri hluta Bestu deildar karla: