ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Stelpurnar fagna einum af mörkum sínum í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta tryggði sér þriðja sætið í Bestu deild kvenna með 2-0 sigri á Stjörnunni á Hásteinsvelli í lokaumferð deildarinnar í kvöld.

Eyjakonur byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á níundu mínútu þegar Olga Sevcova skoraði glæsilegt mark. Allison Clark var nálægt því að bæta við öðru marki ÍBV á 27. mínútu, en skot hennar fór rétt framhjá markinu.

Clark lét það þó ekki á sig fá og tvöfaldaði forystu ÍBV sex mínútum fyrir hálfleik. Ágústa María Valtýsdóttir sendi þá góða sendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar og Clark kláraði færið af öryggi með skoti í nærhornið. Staðan var því 2-0 fyrir ÍBV þegar flautað var til hálfleiks. 

Síðari hálfleikur var fremur tíðindalítill, en Eyjakonur héldu áfram að hafa góð tök á leiknum. ÍBV skapaði sér nokkur góð færi til að bæta við mörkum, en Fridrikka Maire Clementsen fékk tvö álitleg færi með stuttu millibili og Olga Sevcova var einnig nálægt því að skora. Fleiri mörk litu þó ekki dagsins ljós og niðurstaðan varð því 2-0 sigur ÍBV á Hásteinsvelli.

ÍBV lýkur þar með tímabilinu í þriðja sæti Bestu deildar kvenna með 33 stig, sem nýliði í deildinni. Stjarnan endar í sjötta sæti með 28 stig, en Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn og lauk keppni með 49 stig. 

Úrslit kvöldsins í Bestu deild kvenna:

Breiðablik 6 – 2 FH

ÍBV 2 – 0 Stjarnan

Þróttur R. 3 -2 Grindavík/Njarðvík

Nýjustu fréttir

Jónína Einarsdóttir 100 ára
Rabbi á Dala-Rafni kvaddur – Ein vertíð stóð ævina á enda
Sjö marka tap hjá ÍBV gegn Aftureldingu
Úrslit Vöruhúsdeildarinnar fara fram á laugardaginn
Bæjaryfirvöld hafna samantekt úr opnu bókhaldi – án leiðréttingar
Kristín Klara valin í lokahóp U19 landsliðsins
SFS vilja lækka kolefnisgjald sem hefur meira en tvöfaldast frá 2024
Námið mætir barninu þar sem það er statt 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.