Krabbavörn Vestmannaeyja hélt bleikt boð í gærkvöldi í tilefni af bleikum október. Matur, ABBA-skemmtun og happdrætti voru á dagskránni. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari okkar, var á svæðinu og myndaði.
Salurinn hafði verið skreyttur fyrir kvöldið og borð lögð í bleikum anda. Í aðdraganda boðsins lýstu aðstandendur mikilli tilhlökkun á samfélagsmiðlum og boðuðu fjör í góðum félagsskap.
Boðið var upp á mat með suðrænu ívafi að hætti Einsa kalda. Hafdís Víglundsdóttir og vinir hennar sáu um ABBA-skemmtun þar sem gestir gátu tekið undir í söng. Þá var happdrætti með fjölmörgum vinningum.
Krabbavörn Vestmannaeyja þakkar þann fjölbreytta stuðning sem málefnið fær í samfélaginu. Í bleikum október er því víða lagt lið, meðal annars með bleikum messum og samkomum, boltaleikjum, kótelettukvöldum og bleikum kökum.
Myndasyrpu Óskars Péturs má sjá hér að neðan. Smella má á myndirnar til að opna þær í fullri upplausn.