Handknattleiksdeild ÍBV stendur fyrir saltfisksölu í dag, laugardag, þar sem boðið verður upp á ekta saltfisk upp á gamla mátann. Salan fer fram í kró á Skipasandi, á sama stað og síðast þegar félagið stóð fyrir saltfisksölu, frá klukkan 12:00 til 13:30.
Mikil aðsókn var að sölunni síðast og kláraðist þá allur saltfiskurinn. Því er fólk hvatt til að mæta snemma í dag til að tryggja sér sinn skammt.