„Ég er stofnandi Ólafsson Gin sem er vinsælasta Gin á Íslandi en hætti þar öllum daglegum afskiptum árið 2021. Hef þó verið með annan fótinn í áfengisbransanum og velt fyrir mér hvað sniðugt er hægt að gera. Hef ferðast um heiminn og kynnt íslenskt Gin og er alltaf spurður að því hvað sé svona sérstakt við það?“ segir Arnar Jón Agnarsson stofnandi Mosigin ehf. Við erum staddir við sjö eikartunnur í hlíðum Eldfells. Óvarðar fyrir veðri og vindum og þarna hafa þær verið í tvo og hálfan mánuð. Arnar Jón er Eyjamaður í báðar ættir, barnabarn Björgvins Magnússonar hafnsögumanns og Þórunnar Markúsdóttur og Helga Gestssonar kranamanns og Árnýjar Jónsdóttur.
Það kemur því ekki óvart að hann hafi haft Vestmannaeyjar í huga þegar hugmyndin að veðurbörðu Gini varð til. Tunnurnar sjö eru allar notaðar og í þeim hafa þroskast sjö mismunandi vín. Með í för eru miklir vínspekingar, Birkir Hlynsson, Hjálmar Viðarsson, Kári Kristján og Daníel Geir Moritz auk blaðamanns sem þarna var lentur á nettu kenderíi án þess að smakka dropa. Arnar Jón heldur áfram að tala um kynningu á íslenska Gininu.
Séríslenskt
„Maður nefnir íslenska vatnið og blóðbergið og fær spurningar á móti, af hverju er það betra en Gin annars staðar í heiminum? Það er oft erfitt að svara þessu og þá varð til hugmyndin, hvað getum við gert sem er séríslenskt? Bragðbætt með einhverju frá Íslandi þannig að aðrir geti ekki hermt eftir,“ segir Arnar Jón og bætir við að hugmyndin hafi kviknað þegar hann fékk tvær kampavínsflöskur að gjöf á jólum fyrir tveimur árum. Önnur hafði verið á hafsbotni en hin í geymslu.
„Sú sem kom af hafsbotni var öll í hrúðurkörlum. Það var mjög ólíkt bragð af þeim en upphaflega var nákvæmlega sama kampavínið í þeim báðum. Þá fór ég að velta fyrir mér hvort hægt væri að gera eitthvað þessu líkt á Íslandi. Þá kom þessi hugmynd að veðra áfengið sem hefur ekki verið gert áður svo ég viti. Hugmyndin er að endurskilgreina Gin með því að láta náttúruna ráða för. Móta vínið með Íslandi í sinni fjölbreyttu mynd,“ segir Arnar Jón.
Bragð frá flestum heimshornum
Vínið, sem er 61 prósent dregur í sig bragðið af þeim vínum sem áður í tunnunum. „Það besta er að þær draga líka í sig náttúruna. Hér hafa það verið í tvo og hálfan mánuð. Við erum líka með tunnur í Langjökli og það er gjörólíkt bragð af þeim en það er nákvæmlega sama Ginið á báðum stöðum.“ Ginið er geymt í Islay viskí tunnu, Mezcal tunnu frá Mexikó, Púrtvínstúnnu frá Porto, Sauternes tunnur frá Bourdoux, vermúð tunnu, Trip Sec appelsínulíkjörstunnu og loks Chardonney tunnur frá Burgundy.
Tunnurnar eru sérvaldar og koma víða að úr heiminum og að fá réttu tunnurnar er mjög flókið og kosta þær frá 200.000 krónum upp í 500.000 krónur stykkið. „Þær eru alls ekki hannaðar til að vera úti. Liturinn breytist með hverri vikunni og þær láta á sjá. Eru ekki farnar að leka en hleypa augljóslega einhverju úr umhverfinu í gegn um sig. Það eru olíur í Gininu sem gefa því bragð. Þær erum mjög næmar fyrir öllum breytingum, hita, raka og hér kemur smá selta. Ástæðan að ég valdi Heimaey og Langjökul er að munur á aðstæðum verður varla meiri,“ sagði Arnar Jón og bætti við að nú værum við með árgang 2025 fyrir sjónum.
Sami grunnur en ólíkt bragð
Næst verður það árgangur 2026 sem hann segir að verði mögulega öðruvísi. „Tunnurnar verða aldrei eins og það sama á við um vínið. Við verðum með færri tegundir því nú erum að við að finna út hvaða vín henta best. Ég hef komið reglulega og er að kynna vínið fyrir reyndum barþjónum. Það eru allir virkilega ánægðir. Það kemur svo bragð úr tunnunni og veðrið gefur svo lokatóninn.“
Arnar Jón segir að úr hverri tunnu komi um 700 hálfslítra flöskur og að um einstaka vöru sé að ræða. Þar skipta máli staðurinn, áhrif umhverfisins og fleiri þættir sem gera vínið einstakt. Á sér ekki hliðstæðu í öllum heiminum. „Tunnurnar breytast hægt og ég nota þessar einu sinni í viðbót. Þá verður vínið öðru vísi af því að þær hleypa meiru í gegnum sig. Veðrið er líka breytilegt frá ári til árs sem gerir þetta enn meira spennandi, ekki síst fyrir safnara,“ sagði Arnar Jón og þá hófst smökkunin.
Fullkomin upplifun
Þó Ginið í tunnunum væri 61 prósent létu smakkararnir miklu það ekki á sig fá. Mikið spjallað um hverja smökkun og jókst það í réttu hlutfalli við áfengismagnið. Sumt hentaði að þeirra mati í kokteila, annað með Tonic en í það ljúfasta þurfti ekkert nema klaka til að fullkomna upplifunina. Ginið verður blandað niður í 41 prósent þegar það fer á markað sem gerir það mýkra.
„Það verður til dæmis til sölu í Vestmannaeyjum og getur fólk á leið til Eyja pantað flösku sem það fær afhent við komuna. Fleiri geta sýnt víninu okkar áhuga en gin-áhugafólk. Það á eftir að höfða til áhugafólks um vín almennt. Líka safnara sem geta safnað árgöngum af Mosagini og engin faska smakkast eins. Einstök upplifun, einstakt vín í heimsklassa og í takmörkuðu magni. Nú er verkefnið að koma því á markað sem verður spennandi,“ sagði Arnar Jón að endingu.
Af heimasíðu Mosa
Hjá Mosa búum við ekki bara til gin — við mótum það með Íslandi sjálfu. Sýn okkar var djörf frá upphafi: að taka fágað, handgert gin og láta það verða fyrir villtustu kröftum sem náttúran getur boðið upp á. Ekki í rannsóknarstofu. Ekki í kjallara. Heldur úti í hráum öfgum Íslands — inni í jökli og ofan á eldfjalli. Tveir andstæðir heimar. Einn brennivínsdrykkur.
Við köllum ferlið veðrun, því það eru frumefnin sem móta brennivínið. Það snýst ekki bara um tunnur, hitastig eða tíma — þó það skipti líka máli. Það snýst um að láta náttúruna skrifa hluta af uppskriftinni. Vindinn. Saltið. Kuldinn, hlýjan. Þögn djúps íss. Þessir kraftar skilja eftir sig spor og draga fram óvænt bragð í brennivíninu.
Tunnurnar okkar eru fylltar með sérsmíðuðu grunngini okkar — eimað í litlum skömmtum með jurtum sem eru valdar fyrir einstaka eiginleika. Síðan látum við sama ginið þroskast á tveimur gjörólíkum stöðum: á fyrrum brennandi, breytilegu eldfjallahlíðum Eldfells í Vestmannaeyjum og í frosnu kyrrðinni djúpt inni í Langjökli. Við látum síðan veðrun spila sinn þátt og niðurstöðurnar eru ótrúlegar.
Hver tunna er valin með persónuleika að leiðarljósi. Við notum tunnur sem áður innihéldu vermút, mezcal, sauternes, Íslenskt viskí og fleira. Ginið drekkur í sig bergmál hvers áfengis og sameinar það umhverfi sínu. Engar tvær framleiðslur eru eins. Ekkert ár er eins, þetta er vintage gin og þetta er veðrað gin. Ekkert annað gin í heiminum er framleitt á þennan hátt, að minnsta kosti ekki svo vitað sé.
Hvers vegna að fara svona langt?
Vegna þess að Ísland er meira en bakgrunnur okkar – það er samstarfsaðili okkar. Mosi er nefnt eftir íslenskum mosa sem lifir af gegn öllum líkum – hægvaxandi, seigur, dafnar við erfiðustu aðstæður. Það er tákn um allt sem við stöndum fyrir: kyrrlátan styrk, rótgróna nýsköpun og djúpa tengingu við landið okkar.
Við erum ekki að reyna að skapa annað ginmerki. Við erum að byggja upp sögu í hverri flösku — sögu sem byrjar í náttúrunni og endar í glasinu þínu. Hvort sem þú sippir henni á fyrsta flokks bar eða uppgötvar hana á vindasömum slóðum á Íslandi, þá ert þú að smakka einstakt áfengi bragðað af landi, sjó, eldi og ís, í eðli sínu bragðbætt af Íslandi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst