Sjóstangveiðifélag Vestmannaeyja hélt sitt árlega Hvítasunnumót um síðustu helgi. Þátttakendafjöldinn í ár var svipaður og verið hefur undanfarin ár en 34 keppendur röðuðu sér á níu báta. Heildaraflinn var um sjö tonn en veðrið báða keppnisdagana var einstaklega gott. Halldór B. Halldórsson var á staðnum og hér að neðan má sjá myndband hans þegar bátarnir komu til löndunar.