Herjólfur siglir á ný til Landeyjahafnar eftir að hafa siglt til �?orlákshafnar undanfarna daga. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta var Lóðsinn, hafnsögubátur Vestmannaeyjahafnar, sendur að Landeyjahöfn í morgun til að mæla dýpi hafnarinnar, sem virðist vera nægilegt. Herjólfur siglir frá Eyjum klukkan 17:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 19:00.