Vegna slæmrar veðurspár á morgun hefur Herjólfur ohf. ákveðið að breyta siglingaáætlun sinni. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun þar sem búast má við hvössum suðaustanáttum, mikilli úrkomu og erfiðum akstursskilyrðum.
Veðurstofa Íslands spáir suðaustan 20–28 m/s með vindhviðum staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og versnandi færð.
Breytt áætlun Herjólfs: Frá Vestmannaeyjum: kl. 09:00 (í stað 07:00) og kl. 16:00. Frá Þorlákshöfn: kl. 12:00 (í stað 10:45) og kl. 19:45.
Fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi ohf. að ef frekari breytingar verða á áætlun muni þær verða tilkynntar í fyrramálið.
Vegagerðin hefur einnig tilkynnt að bæði Hellisheiði og Þrengslin verði lokuð frá kl. 04:00 í nótt. Áætlað er að opna leiðirnar aftur um kl. 14:00, er bent á í tilkynningu skipafélagsins.