Herjólfur slær met 
Farþegafjöldi og bílaflutningar aldrei meiri 
Ólafur Jóhann framkvæmdarstjóri Herjólfs er bjartsýnn um rekstur Herjólfs á þessu ári.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Árið 2025 var metár í starfsemi Herjólfs, bæði þegar kemur að farþegafjölda og flutningi farartækja. Framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., Ólafur Jóhann Borgþórsson, segir árið hafa gengið afar vel og horfur fyrir nýbyrjað ár vera jákvæðar. Spurður hvort þetta sé í takti við þá þróun sem hófst fyrir þremur til fjórum árum, þegar farið var að markaðssetja Vestmannaeyjar af miklum þunga, segir hann svo vera. 

„Við slógum farþegamet á síðasta ári þegar alls fóru 441.626 farþegar með Herjólfi,“ segir Ólafur. Fyrra metið var aðeins tveggja ára gamalt, en árið 2023 var farþegafjöldinn ríflega 430 þúsund og aðeins lítið minni árið 2024. 

Ekki aðeins var met slegið í farþegafjölda heldur einnig í flutningi farartækja. „Við fluttum yfir 122 þúsund farartæki, sem er rúmum tvö þúsund fleiri en árið á undan.“ 

Skýrari mynd af farþegasamsetningu 

Herjólfur hefur jafnframt unnið markvisst að því að fá betri yfirsýn yfir samsetningu farþegahópsins. 

„Af heildarfjölda farþega voru ríflega 127 þúsund með lögheimili í Vestmannaeyjum, eða tæplega 30%. Þá eru Íslendingar sem ekki eru með lögheimili í Vestmannaeyjum álíka stór hluti farþega,“ segir Ólafur. 

Á síðasta ári var einnig farið að biðja farþega um að skrá þjóðerni sitt við bókun. 

„Sú skráning hefur gefið okkur mjög áhugaverðar upplýsingar. Bandaríkjamenn voru um 13,4% af öllum farþegum Herjólfs árið 2025 og samkvæmt skráningunni voru farþegar alls af 162 mismunandi þjóðernum.“ 

Margþættar ástæður aukningar 

Aðspurður um ástæður aukins farþegafjölda segir Ólafur þær vera margþættar. 

„Gott veður hafði sitt að segja, en einnig öflug markaðssetning Vestmannaeyja sem áfangastaðar undanfarin ár. Þá lengdum við tímabilið þar sem farnar voru átta ferðir á dag, frá 1. júlí og fram yfir Þjóðhátíð.“ 

Hann bendir á að um sé að ræða þróun sem hófst fyrir þremur til fjórum árum þegar farið var markvisst í að auglýsa Vestmannaeyjar sem spennandi áfangastað fyrir ferðamenn. Jafnframt hafi ferðatímabilið lengst enn frekar á síðasta ári. 

„Farþegamet voru slegin bæði í apríl og maí og einnig hefði met verið slegið í september ef Herjólfur hefði ekki verið stóran hluta mánaðarins í slipp.“ 

Ólafur segir átta ferða áætlunina hafa reynst afar vel. 

„Þrátt fyrir að nýtingin sé mjög góð þá er reynsla okkar sú að í átta ferðunum eru færri biðlistar á bíladekkið og skipið sjaldnar uppselt fyrir farþega. Það er afar jákvætt, bæði fyrir íbúa og ferðamenn. Með þessu erum við að bæta samgöngurnar eins og mögulegt er.“ 

Jákvæðar horfur fyrir 2026 

Horfur fyrir árið 2026 eru samkvæmt Ólafi nokkuð jákvæðar, þó alltaf þurfi að hafa í huga áhrif veðurs. 

„Veðrið hefur gríðarleg áhrif á okkar starfsemi og því vonumst við til áframhaldandi blíðviðris. Við sjáum það yfir sumarmánuðina að þegar er sól og blíða er traffíkin mun meiri en þegar rigning og þoka eru ríkjandi. Við ætlum að lengja átta ferða tímabilið enn frekar, hefja það 5. júní og halda því fyrirkomulagi fram yfir miðjan ágúst.“ 

Betri bókunarvél 

Herjólfur hefur jafnframt lagt aukna áherslu á þjónustu. „Við höfum tekið gagnrýni á bókunarvélina á Herjolfur.is alvarlega og verið að laga hana smátt og smátt. Nú er til dæmis ekki lengur nauðsynlegt að skrá nöfn allra farþega áður en séð er í hvaða ferðir er laust, hægt er að víxla höfnum í miðju bókunarferli, vista ferðafélaga og breyta ferðum á einfaldan hátt.“ 

Hann segir frekari úrbætur væntanlegar. „Við erum enn að vinna í bókunarvélinni og fleiri breytingar munu líta dagsins ljós mjög fljótlega. Vonandi mun það einnig gerast á þessu ári að greiðslusíður verði ekki lengur á dönsku,“ segir Ólafur Jóhann. 

Að lokum segir hann að áfram verði lögð áhersla á góða þjónustu og skýra upplýsingagjöf. 

„Við leggjum okkur fram um að veita eins góða þjónustu og mögulegt er og viljum að farþegar upplifi að upplýsingagjöfin sé aðgengileg og traust.“ 

Nýjustu fréttir

Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.