Herjólfur á að fara niður úr slippnum á Akureyri á miðnætti í kvöld og fer að bryggju þar sem lokið verður við viðgerð. Áætlað er að hann sigli frá Akureyri á hádegi á morgun, fimmtudag, og hefji áætlunarsiglingar frá Þorlákshöfn í seinni ferð á föstudag eða kl. 19:30.