Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar út þessa viku í það minnsta, eða til sunnudagsins 20. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar segir að ástæðan sé sem fyrr dýpi í Landeyjahöfn og öldugangur, sem gerir það að verkum að ekki hefur verið hægt að mæla dýpið né vinna við dýpkun.